Organistablaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 49
David Ewen:
1 V E S
Charles Ives, í. 1874 í Danbury, Connecticut. Hann nam hjá Dudley Buck,
Harry Rowe Shelley og í Yale hjá Horatio Parker. Hann vann viS tryggingar
jaínhliða tónsmíðum til 1930. — 1946 fékk hann Pulitzer verðlaunin fyrir
þriðju sinfóniu sína.
Smábæja tónlist var helsti áhrifavaldur i lifi Ives og olli hinni
róttæku nýbreytni hans. Hljómsveitir í smáþorpum liafa sjald-
an hinn hreina tón eða rétta takt. Þetta notaði Ives sér og bræddi
saman þessi ósamhljóma hljóð og skapaði sinn eigin stil. Hann
gerði sér ljóst að þessir smábæja-tónle'ikar bjuggu yfir liinum
sömu einkennum hvarvetna í Ameríku. Til þess að tjá þetta
bjó hann til róttækl og flókið tónkerfi hinna furðulegustu liljóða.
Tónlist hans er djörf í samhljómum, rytma og atonal. „Ég gat
ekki notað þessa hljóma" sagði hann, „ég heyrði eitthvað annað“.
Henry Covell skrifaði um Ives, að hann væri snillingur i að
taka undirstöðuatriði, sem virtust ósamrýmanleg og fella hag-
lega saman. Tónkerfi lians væri nógu viðtækt til þess að setja
saman efnivið af ýmsum te'gundum. Kerfið notaði liann síðan
til að gæða tónlistina lífi og tilfinningu. M. P. þýddi
David Ewen íf. 1907) amerískur tónvísindamaður hefur skrifað fjölda bóka
um tónlist. Nefna má The Book of Modern Composers, American Composers
of Today, The Homebook of Musical Knowledge, The Story of George Ger-
shwin, The Story of Irving Berlin, The Story of Jerome Kern, Haydn: A
Good Live, The Story of Arthuro Toscanini, Panorma of American Popular
Music. Alls munu rit hans vera um 40. — Greinin hér að framan er úr
Musical Meisterworks. í þeirri bók gerir hann grein fyrir rúmlega 150 tón-
skáldum (kaflinn um Ives er gott sýnishorn) og síðan útlistar (analyserar)
hann eitt eða fleiri tónverk hvers höfundar. D. E. hefur hlotið frægð fyrir
ritverk sín.
ORGANISTAHI.AÐIÐ 49