Organistablaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 56
Sálmasöngurinn á auðvitað að sitja í fyrirrúmi Sjálfkjörin
söngkennsluhús verða þá kirkjurnar. Sjálfkjörnir kennsludag-
ar: sunnudagarnir að sumrinu. Sjálfkjörinn söngkennari: org-
anisti hverrar kirkju.
Prestarnir ættu með aðstoð sóknarnefndar, að stuðla að þvi,
að orgel kæmi í hverja kirkju, og að sá maður, sem á orgelið
léki og til þess væri hæfur, kenndi ungu fólki söng á sunnudög-
um eptir messu.
Þetta mundi þá líka brátt verða áhugamál húsbænda og for-
eldra, þeir mundu fljótt gleðjast af því, er börnin kæmust svo
langt, að þau gætu iðkað hina fögru list í heimahúsum, sem vera
ætti heimilisprýði á hverjum bæ. Þetta mundi og nokkuð auka
kirkjurækni, sem víða er kvartað yfir, að ekki sé í góðu lagi.
En söngurinn er ekki að eins vegna hljómsins, heldur á og
nver maður, jafnvel þótt hann ekki geti sungið, að hafa sína
sálmabók með sér í kirkjuna, svo nndinn geti fylgt orðunum
þangað sem þau eru stýluð.
(Þjóðólíur, 24. marz 1893).
4. UM SAUNG í BESSASTAÐASKÓLA
1. Ur bréfi séra Arngríms Haldórssonar á Bægisá, dags. í
Bessastaðaskóla 28. Febr. 1835 til skólabrcður síns i Kaupmanna-
höfn.
„Mjög er nú hljótt i saungvasæti etc. Þar er nú aldrei sem
maður geti feingið að heyra sungið nema tvisvar i vetur hefur
Snorri' komið hér, en ekki cr að spyrja að hljóðunum, en þó
þótti mór þin hljóð sætari og mátulega sterk. Eg er orðinn eins
og rifin rolla i barkanum, enda er eg aldrei hreinn, nema helz-.
eptir grautinn.. Að sönnu komu hér tveir Novi2 Stephán Pálsson
og hans bróðir í haust, sem hafa góð hljóð, en Stephán er corr-
uptus:i því hann hefir svo mikið við, en Siggeir er óstjórnlegur
enn þá og eingin lögun komin á hljóðin i honum. Reykjalín4
er rétt góður eins og þú manst til, en það er verra, að hann
56 ORGANISTABLAÐIÐ