Organistablaðið - 02.12.1978, Blaðsíða 57
er svo veikur í lögum; til dæmis í vetur einu sinni viltist hann
í bassanum í þessu lagi: Guð miskuni nú öllum oss etc. sem
er hér þó algeingt lag. Opt hefir Justitsraaden5 súngið hér i
vetur, en það er ekki annað eptir af honum en undirbassinn.
Svona fer öllu aptur hjá okkur að mér finst, lagsmaður, í þessu
efni og þykir mér þó vont. Eg er að kúga þá til að, sýngja, en
það dugir ekki. Eg vildi einasta að þú værir kominn við og við
hingað í vor eptir að skóla verður upp sagt til að raula með
einstaka vers, ef svo fer, sem til stendur, að ég verði hér til
lestanna; en hvað duga þessar óskir? fata et ordo rerum skamta
gánginn“.
II. 1 bréfi dagsettu 26. Febr. 1833 á Bessastöðum frá sama
manni til áður umgetins skólabróður, er enn getið Jóns Reykja-
lins: „Hann hirðir heldur eigi um að læra lögin, þó ég kynni
að kunna eitthvað fram yfir hann; ég hefi þó grætt nokkuð
þetta árið, eg hefi lært lagið: Hátt upp i hæðir og af Miiller
i vor nýtt lag við Integer vitæ0. Áður var eg búinn að læra
nýtt lag við heimili vort og húsin með. Eg saung það einusinni
i kirkjunni við hjónavigslu i haust, og þá varð Egilsen og doct-
orinn7 öldungis innteknir í því; á dögunum þegar kóngs há-
tíðin var hér, bað Egilsen okkur að sýngja og saung sjálfur með:
O þú göfuglega þrenning og Kom helgi andi hér, þá dáðist hann
innilega að, og þetta máttum við hafa alt kvöldið. Annars hef
eg ei séð Egilsen annan tima glaðari, því hann lék sér eins og
lamb“.
i) Séra Snorri Sæmundsson á Desjamýri d. 1844; 2) nýsveinar; 3)hefir skemt
sig; 1) Séra Jón Reykjalín; 5) þ. er Bjarni Thorarensen; 6) I. ljóðabók Hor-
atsar, 22. kvæði; 7) Hallgrímur Scheving.
(Sunnanfari 5. nóvember 1892).
C. REINECKE:
Varast að gera eitt tónskáld að átrúnaðargoði. Meistarana
tniklu má aðeins setja hvern við annars hlið, en hvorki fyrir
ofan eða neðan; þeir hæta hver annan upp.
Heimir 1923.
ORGANISTABLAÐIÐ 57