Organistablaðið - 02.12.1978, Side 61

Organistablaðið - 02.12.1978, Side 61
og höfundana með nokkrum orðum — Daginn eftir flaug Hagnar Björnsson til Kanada og Bandaríkjanna í tón- leikaför. Veslmannaeyjar Guðmundur H. Guðjónsson hélt orgeltónleika í Landakirkju 2. júlí sl. Verkefni voru eftir Edw. Kendel, Samuel Scheidt, Georg Böhm, J. S. Bach og frá seinni tímum L. Böell- mann og César Franck. Austfirðir. Guðni í>. Guðmundsson orgelleik- ari, Ingveldur Hjaltested söngkona, Hrönn Geirlaugsdóttir fiðluleikari og Sigurður Markússon fagottleikari ferð- uðust um Austfjörðu og héldu tón- leika í Reyðarfjarðarkirkju 17, Eski- fjarðarkirkju 18. og Norðfjarðarkirkju 19. nóvember. Frétíir úr S. Þingeyjarsýslu. Söngmót Kirkjukórasambands Suð- ur-Þingeyjarsýslu var haldið í hinu Páll K. Jónsson nýja íþróttahúsi að Laugum í Reykja- dal 9. apríl 1978, 1 tilefni 70 ára af- mælis Páls H. Jónssonar. Hann var um árabil organisti við E'inarsstaða- kirkju, söngkennari við Héraðsskól- ann að Laugum, auk þess ssm hann vann mikið starf að söngmálum sýsl- unnar. Hann var fyrsti formaður Kirkjukórasambandsins. Mót þetta tókst mjög vel, gott var að syngja í hinum nýja sal og hljóm- burður er þar mjög góður. Níu kórar komu fram sem einstakl- ingar og sungu tvö til þrjú lög hver, tíu kórar tóku þátt í samsöngnum samtals um 200 manns og fluttu þrjú lög eftir Pál H. Jónsson auk þjóð- söngsins. Formaður sambandsins er nú Þrá- inn Þórisson. Þrír kórar innan sambandsins starfo nokkuð reglulega og æfa sérstaka efnisskrá utan hins venjulega kirkju- söngs. Eru það Kór Húsavíkurkirkju en hann heldur tónleika einu sinn* til tvisvar á ári, og kórarnir í Mý- vatnssveit, Kórar Reykjahlíðar og Skútustaðakirkju, en auk kirkjukvölda hafa þeir haldið sameiginlega eitt skemmtikvöld á vetri og á tvö síð- ustu skemmtikvöld hafa þeir boðið kórum úr Reykjadal, Aðaldal og Köldukinn. Þessi skemmtikvöld fara þannig fram, að kórfélagar koma með eina kökusort hver og svo er sam- eiginlegt kaffi. Þá syngja kórarnir hvor um sig 4—6 lög og að lokum söngfólkið allt 3—4 lög og síðan er dansað. Þessi kvöld hafa tekist mjög vel og vil ég hvetja aðra kóra til að taka þetta upp hjá sér. Það er mik- ils virði fyrir félagsstarfið innan kór- anna. Jón Árni Sigfússon. ORGANISTABI.AÐIÐ 01

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.