Organistablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 6

Organistablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 6
frá efri vixlnótu. Samanborið við þetta ágaeta, lítúrgíska framlag erfrumsamið lag hans, Við kirkjunnar klukknahljóm, tilkomuminna, með óþarfri krómatík, tilbreytingasnauðum bassa og ósannfærandi, einradda niðurlagi. Páll Isólfsson var um langt skeið mestur atkvæðamaður íslenzkra tónmenntamála. Sem dómorganisti var hann í rauninni sjálfkjörinn leiðtogi íslensks kirkjusöngs. Samt mun hann ávallt hafa verið meiri organleikari en söngstjóri. Mörg laga hans hafa náð mikilli útbreiðslu, einkum einsöngslög. Hér á hann alls fjögur lög, m.a. passíu-lagið Ég kveiki á kertum minum, með stemmningsríkri byrjun og litföróttri hljómsetningu. Einkennilegt er þó, að miðhluti þess samsvarar tæplega upphafi. Þjóðlegt í stíl er lagið úr "Gullna hliðinu", Ú, Jesús, en leikhúsblærinn vill lengi loða við, enda er æði langt bil milli sjónleiks og guðsþjónustu, nær ósamrýmanlegt. Lög Björgvins Guðmundssonar sýna mörg tilþrif í lífmikilli sönglínu, en skortur á kostgæfilegri raddsetningu stendur þeim oft fyrir þrifum (bls. 1, 146). Vér treystumþvi, eftir Jón Nordal ber of mörg merki flausturs, þannig að raddfærsla verður helzti hnökrótt (samstígni, krómatík óþarflega tíð, þverstæði, órói stökkhreyfingar), þrátt fyrir sönglegt upphaf. Þá er útsetning hans á Svo stór synd ekki nógu vel hugsuð (smástígni, færsla ómstríðra tóna, röð mishljóma). Hinn kunnáttusami kontrapunktiker, Þórarinn Jónsson, birtir hértvölög. Guð, allur heimur er haglega mótað lag, með auðugri hljómsetningu, þó helzti flikróttri, en haldgóð kunnáttan leynir sér ekki. Hið sama má og marka af lagi hans, Þú Guð, sem stýrir stjarna her, með ríkulegum tenginótum en óþarfri krómatík. Þá á hér Ragnar Björnsson eitt lag og þrjár raddsetningar. Af þeim er bezt Himna rós fyrir einsöng og orgel. Skýr undirleikslína heldur góðu samræmi við lagrödd, en fimmundar-samstígni milli hennar og fótspils óprýðir annars sléttfelldan tónbálk (bls. 135, neðsta lína). Hinsvegar er raddsetningin Þín náðin, drottinn óhönduglega gerð, stíllausog "sentimental", meðósjálfstæðum raddgangi (samstígar einundir undirradda), endurteknum gabbendi og tóngapi, auk ástæðulausrar mishljómsbyrjunar. Lag Bjarna Bjarnasonar, Vor ævi stuttrar stundar, er prentað sem útsetning Ragnars, en í Organistablaðinu 1976, bls. 35 ber hann af sér þessa aðild og eignar hana "að öllu leyti" Bjarna. Hvorugt er rétt. Lagið birtist í söngvasafni greinarhöfundar, Farsælda frón, Organum II, 1952. Raddsetning er í öllum aðalatriðum gerð af honum, enda hefir hann útsett og útgefið fleiri lög frá Bjarna. Að vísu er raddfærslu hnikað til á nokkrum stöðum, en við samanburð má glöggt sjá, hvar uppruninn er. Að öðru leyti er annars ekkileyfilegt að víkja við raddfærslu útgefins lags nema með leyfi höfundar hennar. Ragnar hlýtur því enn að gefa frekari skýringu á útsetningaraðild sinni. Fram hjá þessu atriði er ekki hægt að ganga í umsögn um umrædda bók. Hér sem endranær er skylt að hafa það er sannara reynist. - Lag þetta er reyndar prentað þannig í Viðbæti, að ógjörningur er að ráða fram úr því, þar eð vantarforteikn tóntegundar, einn kross (G-dúr). Að endingu skal minnst á útsetningu J. Þórarinssonar, Nú rís og brosir röðull nýr. I rauninni er hún með beztu númerum bókar, sakir trausts handbragðs línubundinnar hljómsetningar, og dæmigerð sönnun þess, að einfaldleiki býr oft yfir sterkastri tjáningu rökvíslegrar hófsemdar. Hér opnast leið að endurnýjun 6 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.