Organistablaðið - 01.12.1979, Síða 9

Organistablaðið - 01.12.1979, Síða 9
Skúli Helgason: Þáttur úr ævi Guðmundar frá Fjalli (skráð eftir frásögn hans.) Ég er fæddur árið 1874 á Fjalli á Skeiðum en dvaldi uppvaxtarárin í Móakoti í Kaldaðarneshverfi. Þá var enn kirkja í Kaldaðarnesi, og þjónaði henni á þessum árum sr. Ólafur Helgason á Stóra-Hrauni. Hann var einn af þeim mönnum, sem mér hafa alltaf verið minnisstæðir. Hann var ágætur prestur í kirkju, bæði fyrir altari og í stól. Maðurinn sjálfur var öðlingur, sem alls staðar vildi láta gott af sér leiða, enda naut hann vinsælda, einkum voru það börn og unglingar, sem hændust að honum. Ég varð snemma hrifinn af söng og hljóðfæraslætti og byrjaði fljótt að syngja í Kaldaðarneskirkju, en þá var þar ekkert hljóðfæri. Sr. Ólafur messaði þar þriðja hvern sunnudag, og var þá oftast full kirkja. Ég var 1 8 ára, er hér var komið sögu. Það var þá eitt sinn eftir messu, að sr. Ólafur tók mig tali út undir kirkjuvegg. Hann sagðist vera búinn aðtaka eftir því, að ég væri hneigður fyrir söng og mundi hafa næmt eyra fyrir hljóðfæraslætti. Hefði sér því dottið í hug að koma mér til náms að læra að spila á orgel; kirkjan reyndi síðan að eignast hljóðfæri og ég yrði svo organisti við hana. Ég varð steinhissa á oröum prests, átti ekki von á þessu. Ég hafði heyrt leikið á hljóðfæri í Kaupmannshúsinu á Eyrarbakka og verið mjög hrifinn af, en að ég fengi að læra slíkt nokkurn tíma, það gat ég ekki hugsað mér. Ég sagði sr. Ólafi, að mig langaði mikið til að reyna þetta, ef hann vildi styrkja mig til þess, en ekki þyrði ég að ákveða neitt þessu viðkomandi nema ræða það fyrst við móður mína, sem ég var hjá í Móakoti. Það kvað prestursjálfsagt, en næst þegar hann messaði, skyldi ég vera búinn að taka ákvörðun um þetta. Ég flýtti mér heim frá kirkjunni og sagði móður minni tíðindin. Heldur tók hún þessu dauflega, sagði, að vísu væri gott, aðég lærði eitthvað, en lítið mundi þessi lærdómur gefa mér í aðra hönd. Samt sagðist hún láta mig ráða þessu, ef sr. Ólafur sækti það fast, því hún sagðist vita, að hann vildi mér svo vel. Ég var ákveðinn að leggja út í þetta. Næst, þegar sr. Ólafur messaði í Kaldaðarnesi, var ORGANISTABLAÐIÐ 9

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.