Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 9
Skúli Helgason:
Þáttur úr ævi
Guðmundar frá Fjalli
(skráð eftir frásögn hans.)
Ég er fæddur árið 1874 á Fjalli á Skeiðum en dvaldi uppvaxtarárin í Móakoti í
Kaldaðarneshverfi. Þá var enn kirkja í Kaldaðarnesi, og þjónaði henni á þessum
árum sr. Ólafur Helgason á Stóra-Hrauni. Hann var einn af þeim mönnum, sem
mér hafa alltaf verið minnisstæðir. Hann var ágætur prestur í kirkju, bæði fyrir
altari og í stól. Maðurinn sjálfur var öðlingur, sem alls staðar vildi láta gott af sér
leiða, enda naut hann vinsælda, einkum voru það börn og unglingar, sem
hændust að honum.
Ég varð snemma hrifinn af söng og hljóðfæraslætti og byrjaði fljótt að syngja í
Kaldaðarneskirkju, en þá var þar ekkert hljóðfæri. Sr. Ólafur messaði þar þriðja
hvern sunnudag, og var þá oftast full kirkja.
Ég var 1 8 ára, er hér var komið sögu. Það var þá eitt sinn eftir messu, að sr.
Ólafur tók mig tali út undir kirkjuvegg. Hann sagðist vera búinn aðtaka eftir því,
að ég væri hneigður fyrir söng og mundi hafa næmt eyra fyrir hljóðfæraslætti.
Hefði sér því dottið í hug að koma mér til náms að læra að spila á orgel; kirkjan
reyndi síðan að eignast hljóðfæri og ég yrði svo organisti við hana. Ég varð
steinhissa á oröum prests, átti ekki von á þessu. Ég hafði heyrt leikið á hljóðfæri í
Kaupmannshúsinu á Eyrarbakka og verið mjög hrifinn af, en að ég fengi að læra
slíkt nokkurn tíma, það gat ég ekki hugsað mér. Ég sagði sr. Ólafi, að mig langaði
mikið til að reyna þetta, ef hann vildi styrkja mig til þess, en ekki þyrði ég að
ákveða neitt þessu viðkomandi nema ræða það fyrst við móður mína, sem ég var
hjá í Móakoti. Það kvað prestursjálfsagt, en næst þegar hann messaði, skyldi ég
vera búinn að taka ákvörðun um þetta.
Ég flýtti mér heim frá kirkjunni og sagði móður minni tíðindin. Heldur tók hún
þessu dauflega, sagði, að vísu væri gott, aðég lærði eitthvað, en lítið mundi þessi
lærdómur gefa mér í aðra hönd. Samt sagðist hún láta mig ráða þessu, ef sr.
Ólafur sækti það fast, því hún sagðist vita, að hann vildi mér svo vel. Ég var
ákveðinn að leggja út í þetta. Næst, þegar sr. Ólafur messaði í Kaldaðarnesi, var
ORGANISTABLAÐIÐ 9