Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 12

Organistablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 12
og tók til máls. Kvaðst sá vera hlynntur því, að hljóðfærasláttur yrði viðhafður í kirkjunni, en alltof mikið í lagt að kaupa orgelið. Gerði hann það aðtillögu sinni, að ég lánaði kirkjunni orgelið fyrst um sinn fyrir sanngjarna þóknun og spilaði á það. Var nú eins og leyst væri frá skjóðu, margir tóku undir þessa tillögu og töldu hana hagkvæmasta. Hér varð engu um þokað, en ég fann aðsr. Ólafi þótti þetta leiðinlegt fyrir mína hönd. Ekki sá ég mér annað fært en að ganga að þessum skilmálum, ánægjan yfir að hafa fengið hljóðfærið og lært að spila á það varð líka þyngri á metum en fátæktin, einhvern veginn hlaut ég að geta klofið kostnaðinn. Ég varð svo organisti í Kaldaðarneskirkju og mun hafa gegnt þeim starfa um tveggja ára skeið. Sem fyrr segir, var alltaf messað þriðja hvern sunnudag. Orgelið hafði ég heima í Móakoti, og í hvert sinn sem messað var, bar ég það til kirkjunnar á handbörum, ásamt öðrum manni. Það var dálítiðfyrir þessu haft, og nú á dögum mundi þetta þykja fásinna, enda öldin önnur. Aldrei fékk ég hina umtöluðu þóknun fyrir orgellánið og því síður nokkuð fyrir að spila á það, meira horft í hverja krónuna þá en nú. Samt fór svo að næsta haust hafði ég einhver ráð með að greiða Jónasi Helgasyni skuld mína, er ég kom þá til Reykjavíkur. Fagnaði hann mér vel og hrósaði skilvísi minni. Þetta fyrsta orgel mitt seldi ég síðar Laugardælakirkju og fékk þá annað stærra, er Ísólfur Pálsson pantaði fyrir mig. Það var afburða gott hljóðfæri. Man ég, að sr. Ólafur Magnússon í Arnarbæli tók í það, er ég var nýbúinn að fá það. Varð hann mjög hrifinn og vildi fyrir hvern mun kaupa það af mér, en það var ekki falt. Þetta orgel á ég enn, og hefur það veitt mér ótal ánægjustundir. Framanskráðan frásagnaþátt sagði mér Guðmundur Ólafsson, Þingholtsstræti 8 í Reykjavík árið 1960. Var hann þá 86 ára gamall. Þótti mér sagan merkileg og góð aldarfarslýsing. Fékk ég gamla manninn til að endursegja mér hana og ritaði þá niöur jafnharðan. Skúli Helgason Þessi "þáttur úr ævi Guðmundarfrá Fjalli", er birtur hér með góöfúslegu leyfi höfundarins. Þátturinn var áður prentaður í tímaritinu Goðasteini 6. árg. 1. hefti 1976. I sama riti - Goðasteini - 6. árg. 2. hefti 1976 eru minningarorð um Guðmund Ólafsson eftir Björn Sigurbjarnarson. Björn rekur fyrst ættir Guðmundar, segir svo frá uppvexti hans, kvonfangi - kona hans var Guðrún Sigurðardóttir frá Ánastöðum á Mýrum vestur og varö þeim 6 barna auðið - búskap hans í Árnessýslu, veru hans á togara eftir að hann fluttist til Reykjavíkur 1924, fimmtugur að aldri, - og síðan 'gerðist hann húsvörður hjá Tónlistarskóla Reykjavíkur I Þrúðvangi”. B.s. lýsir Guðmundi frá Fjalli þannig: ' Guðmundur Ólafsson frá Fjalli var mikill vexti og sterkur. Bar höfuð og herðar yfir alla meðalmenn. Vel limaður, beinvaxinn og vel á sig kominn aðöllu. Augu blágrá. Augnatillitið djarft og einbeitt. Dökkur á hár og hærður vel. Loðbrýndur, hánefjaður nokkuð, fremur stórskorinn, en svipmikill og að öllu vel farinn í andliti. Höfuðstór langhöfði. Glæsimenni og atgjörfismaður. Átti ríka hneigð til hljómlistar og var lengi 'organisti". • Gamansamur og kíminn. Orkti gamanvísur á yngri árum. Guðmundur fæddist 9 des. 1874. Hann dó 15. okt. 1965, 1 2 ORGANISTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.