Organistablaðið - 01.12.1979, Side 34
Auk þjónustu við kirkju sína og kirkjukór stjórnaöi Baldur almennum söng við
fjölda tækifæra í heimabyggð, og kirkjukórinn söng margsinnis undir stjórn hans
utan kirkju.
Baldur Jónsson var hár maður og fríður sýnum, gjörvimenni og gleðimaður,
sem öllum þótti vænt um, er kynntust honum. Hann var viðkvæmur í lund og
öllum nærgætinn og vinsamlegurog þvível látinn og vinmargur, enda valmenni.
Andrés Kristjánsson
Helgi Hallgrímsson.
Helgi Hallgrímsson lést 23. maí 1979. Fæddur var hann 14. apríl 1891. Glaður
og reifur náði hann háum aldri. Snemma komu í Ijósgóöirtónlistarhæfileikar hjá
honum. Hann lauk kennaraprófi 1912. Tónlistarkennarar hans voru Brynjólfur
Þorláksson og Sigfús Einarsson.
Helgi kenndi fyrst í Keflavík en síðan á Eyrarbakka 1913 - 17. Þá varð hann
fulltrúi Hafnarsjóðs Reykjavíkur.
Um tíma rak Helgi nótna- og hljóðfæraverslun í Reykjavík. Á þeim árum bauð
hann mönnum upp á að hlýða, í Nýja Bíói, á valin tónverk helstu meistara tón-
listarinnar flutt af grammófónplötum með þeim bestu tækjum, sem þá voru
fáanleg, sungin og leikin af hinum færustu listamönnum og upptökurnar gerðar
með þeim bestu tækjum sem voru á markaðnum. (Þetta var nokkrum árum áður
en Útvarpið byrjaði sína stórfelldu plötukynningu með allskonar tónlist.)
Þá hélt hann fyrirlestur um Schubert, sem síðar var prentaður og gefinn út.
Hann var góður söngmaður og snjall ræðumaður, einkum er við brugðið
samkvæmisræðum hans.
I nokkur ár hélt hin kunni predikari, próf. Haraldur Nielsson, föðurbróðir Helga
uppi guösþjónustum I Frlkirkjunni ( Reykjavík. Helgi var lengstaf organisti við
þær guðsþjónustur.
34 ORGANISTABLADIÐ