Organistablaðið - 01.12.1979, Síða 36

Organistablaðið - 01.12.1979, Síða 36
Veturinn 1 943 - 1944 var hann við nám í íslenskri hljóðfræði í heimspekideild Háskóla íslands. Jón var organisti í Ólafsfjarðarkirkju í 25 ár, og eftir að hann fluttist til Akureyrar var hann lengi í stjórn kirkjukórs og Kantötukórs Akureyrar. Hólmfríður Halldórsdóttir Hólmfríður Halldórsdóttir prófastsfrú var fædd 19. febrúar 1891. Hún dó í Reykjavík 4. nóv. 1979. Hólmfríður var dóttir Halldórs Jónssonar bankagjaldkera og Kristjönu dóttur Péturs Guðjohnsens organleikara. Henni var tónlistin í blóðið borin. Hún hafði hið svokallaða óbrigðula eyra (absolut heyrn). Píanóleik lærð' hún hjá frændkonu sinni Ástu Einarsson, en hún var bróðurdóttir Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds. Síðar fór hún til Danmerkur og Þýskalands til tónlistarnáms. Árið 1916 giftist hún sr. Jósep Jónssyni sem þá hafði vígst að Barði í Fljótum, en þau fluttust 1918 að Setbergi við Grundarfjörð og bjuggu þar síðan alla prestsskapartíð sr. Jóseps. Hólmfríður var organisti við kirkjur manns síns alla hans prestsskapartíð uns hann lét af embætti og þau fluttust til Reykjavíkur. Og ekki dvínaði tónlistaráhuginn því að hún fylgdist vel með því sem gerðist á tónlistarsviðinu í höfuðstaðnum. Hólmfríður hafði frábært næmi og minni. Frændkona hennar, Guðrún J. Þorsteinsdóttir segir svo frá: "Mér verður hugsað til þess er ég heyrði sem barn, og lýsir henni hvað best". Árið 1907 var frumflutt Kantata eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson í Alþingishúsinu í tilefni konungskomunnar. Frú Ásta Einarsson annaðist píanóundirleik og aðstoöaöi Hólmfríður hana við að fletta nótunum. Hólmfríður hafði annars ekki nóturnar undir höndum, en lærði samt alltverkið utanað. Þegar ég innti hana eftir þessu fyrir nokkrum árum, gekk hún að píanóinu og sagði: "já, það var þetta" og spilaði. 36 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.