Organistablaðið - 01.12.1979, Side 39
Aðventa 1978
Þaö þykir vonandi ekki eiga illa viö að byrja
fréttafrásögn þá, sem hér fer á eftir, með
kirkjuári, þ.e.a.s. með aðventu 1978. Þá - í
desemþer 1978 mátti tftt heyra og sjá í
svokölluðum fjölmiðlum orðin aðventu-
kvöld, aðventusöngvar, aðventusamkoma,
aðventutónleikar, jólavaka, jólasöngvar
o.s.frv.
Þessar samkomur eru ekki tónleikar í þeirri
merkingu sem við leggjum venjulega í það
orð, því að efnisskráin mun að jafnaöi skipt
milli talaðs orðs og tónlistar - líklega til
helminga. En organistar og kirkjukórar sjá
að langmestu leiti um tónlistarflutninginn
þó að aðrir leggi þar oft fram góöan skerf, og
haldi stundum á eigin vegum svipaðar
samkomur. En það sýnir að kirkjurnar eru
allmikið notaðar sem tónleikahús.
Yfirleitt er hér um vandaðan tónlistar-
flutning að ræða. Geta má þess einnig að í
sumum byggðarlögum er starfsemi
kirkjukóranna sú helsta tónlistariðkun sem
fólki gefst tækifæri til að taka þátt íog getur
þá orðið kærari en sú tónlist sem ætíð
stendur til boða í fjölmiðlum, jafnvel þó
ágæt sé. Mætti því sennilega gefa henni
meiri gaum en gert hefur verið.
Trúlegt er að ekki komi öll kurl til grafar í því
yfirliti sem hér fer á eftir og ekki heldur víst
að allt sé tíundað sem til greina kemur.
Neskirkja: 3. des. Aðventustund. Bræðra-
félag Nessóknar hafði forgöngu. Talaðorð:
Formaöur Bræðrafélags Nessóknar: Ávarp.
Guðmundur Arnlaugsson rektor: Ræða:Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson: Ávarp og
bæn. Tónlist: Reynir Jónasson lék "Vakna,
Síons verðir kalla" og Tokkötu og fúgu I d-
moll eftir J.S.Bach. Kórsöngur undirstjórn
Reynis Jónassonar. Jóhanna Möller söng
einsöng. Ennfremur var almennur söngur.
Hafnarfjarðarkirkja Aðventukvöld 3. des.
Talað orð: Sóknarpresturinn, sr. Gunnþór
Ingason. Ritningarorð - þakkarorð og bæn:
Magnús Torfi Ólafsson: Erindi. Tónlist.
Samkoman byrjaöi með því að organ-
leikarinn, Páll Kr. Pálsson, lék Partitu f.
orgel eftir Pál Halldórsson yfir sálmalagið
"Hin mæta morgunstundin" eftir Bjarna
Pálsson. Kórsöngur: Kór Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar söng nokkur
lög, þ.á.m. "Hátíð er að höndum ein"
partitu um fsl. þjóölag fyrir sópran-sóló, bl.
kór og orgel eftir S.D.K. og var það frum-
flutningur. Einsöngur: Sigríöur Gröndal,
sópran. Kórsöngur - kirkjukórinn. Selló-
leikur, Páll Gröndal. Samkomunni lauk
með því að P.K.P. lék Tokkötu um Creator
alme siderum úr Aðventusvitu eftir Pietro
Yon.
Frfkirkjan í Reykjavfk, Jólavaka 10.des.-
Kvenfélag Frfkirkjusafnaðarins og Bræðra-
félag Frfkirkjusafnaðarins stóðu fyrir
þessari samkomu. Talað orð: Sr. Kristján
Róbertsson: Ávarp: Sr. Gfsli Brynjólfsson;
Ræða? Tónlist: Sigurður fsólfsson lék á
orgel Pastorale eftir A. Guilmant.Noel eftir
Claude d’Aquin og tvö kóralforspil, "Ó, hve
dýrleg er aö sjá" eftir J.L. Emborg og "I dag
ORGANISTABLAÐIÐ 39