Organistablaðið - 01.12.1979, Page 52

Organistablaðið - 01.12.1979, Page 52
Öll voru fjöllin eins og fest upp á þráð segir Anna Þórhallsdóttir söngkona í afmælis- rabbi. Morgunblaðið 27. sept. Prófessor til lífst/ðar við tónlistar- háskólann í Vínarborg. Það eru "nokkur orð um feril og frama Svanhvítar Egilsdóttur frá Hafnarfirði". Lesbók Mbl. Kórall heitir auglýsingablað Kórs Mennta- skólans við Hamrahlíð. Lesmálið er að miklu leiti um tónlist. Út/endar fréttir Franz Schubert:3 Fugen fúr orgel verlag Doplinger. Það þykir tíðindum sæta þegar í leitirnar koma áður óþekkt handrit eftir miklu tónlistarmeistarana. Nýlega hafa verið gefnar út 3 fúgur fyrir orgel, sem ekki var kunnugt um áður, eftir Franz Schubert. Talið er að þær séu samdar 181 2, en þá var höf., 15 ára, og sýna þær að hann hefur þá verið vel að sér í kontrapunkti, sem sagt kunnaö ágætlega sitt handverk. En óvíst þykir þó að þær auki miklu við hróður tónskáldsins. I handritinu er ekki getið um fyrir hvaða hljóðfæri fúgurnar eru samdar og sjálfsagt hægt að leika þær á píanó ef vill. Musik og Kirke, hið merka rit eftir Thomas Laub, hefur nú verið endurútgefið (1978) en þaö kom fyrst út 1920. I nýju útgáfunni er formáli eftir dr. Sören Sörensen og inngangsritgerð eftir dr. Henrik Glahn. Nafnaskráin sem dr. Povl Hamburger samdi og fylgdi 2, útgáfunni er einnig með. Anton Heiller. Orgelsnillingurinn Anton Heiller er látinn. Hann var fæddur í Vínarborg árið 1923. Aðeins nítján ára gamall lauk hann prófi frá Tónlistarháskólanum í Vín. Þrem árum síöar var hann skipaður professor við sömu stofnun ‘og gegndi þeirri stöðu til dauðadags. Frægastur var hann fyrir túlkun sína á orgelverkum Bachs. Hann þótti einnig mjög góður semballeikari og tónskáld. Hann hlaut fjöldamörg verðlaun fyrir starf sitt. Fjöldi nemenda hans er óteljandi og útbreiddir um allan heim. Prófessor A.H. kom hingað til íslands í apríl 1963 og hélt tónleika í Landakots- kirkju 17 apríl 1963. H B. Paul Dessau andaðist 28. júní s.l. 84 ára gamall. Hann var fæddur í Hamborg, en starfaði lengi í Bandaríkjunum, en fluttist svo aftur til föðurlands síns og settist að í Austur-Þýskalandi. Hans var oft getið meðan hann var upp á sitt besta, því að hann var talinn meðal merkustu tónskálda samtímans f Þýskalandi. P.D. skrifaði mikið af kvikmyndatónlist, starfaði t.d. mikið með Bertold Brecht. En hann samdi einnig sinfoníur, óperur, kvartetta, kammertónlist kantötur og kórsöngva. Georg Fjelrad andaðist 1. des. 1979, 78 ára. Hann var einn allra mesti organleikari Dana. Hann þótti frábær kennari og mikill mannkostamaður. _John Bjerkestrand Á sl. ári lést John Bjerkestrand á besta aldri. Hann lét mikið til sín taka í félagsmálum Norska organistafélagsins og var formaður þess frá 1 976. Hann lét sig ávallt mikið varða endurnýjun kirkjutónlistarinnar og var mjög virkur í Musica Sacra í Noregi. J. St. Matti Rindell Matti Rindell, dómorganisti við dómkirkjuna í Kuopio í Finnlandi lést í umferðaslysi á þessu ári (1979), aðeins 45 ára að aldri. Matti Rindell var ekki aðeins mjög virtur organleikari sem á fjölmörgum tónleikaferðum, innan og utan Finnlands, sýndi og sannaði hæfileika sína, heldur var hann einnig drifkraftur í félagsmálum organleikara í Finnlandi. Hann var góður skipuleggjari og kom það vel í Ijós á Norræna kirkjutónlistarmótinu sem haldið var í Finnlandi s.l. ár, undirforystu hans, en hann var formaður Norræna kirkjutón- listarráðsins frá 1974-1979. J. St. 52 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.