Organistablaðið - 01.12.1979, Qupperneq 52
Öll voru fjöllin eins og fest upp á þráð segir
Anna Þórhallsdóttir söngkona í afmælis-
rabbi.
Morgunblaðið 27. sept.
Prófessor til lífst/ðar við tónlistar-
háskólann í Vínarborg. Það eru "nokkur orð
um feril og frama Svanhvítar Egilsdóttur frá
Hafnarfirði".
Lesbók Mbl.
Kórall heitir auglýsingablað Kórs Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Lesmálið er að
miklu leiti um tónlist.
Út/endar fréttir
Franz Schubert:3 Fugen fúr orgel verlag
Doplinger.
Það þykir tíðindum sæta þegar í leitirnar
koma áður óþekkt handrit eftir miklu
tónlistarmeistarana. Nýlega hafa verið
gefnar út 3 fúgur fyrir orgel, sem ekki var
kunnugt um áður, eftir Franz Schubert.
Talið er að þær séu samdar 181 2, en þá var
höf., 15 ára, og sýna þær að hann hefur þá
verið vel að sér í kontrapunkti, sem sagt
kunnaö ágætlega sitt handverk. En óvíst
þykir þó að þær auki miklu við hróður
tónskáldsins. I handritinu er ekki getið um
fyrir hvaða hljóðfæri fúgurnar eru samdar
og sjálfsagt hægt að leika þær á píanó ef
vill.
Musik og Kirke, hið merka rit eftir Thomas
Laub, hefur nú verið endurútgefið (1978)
en þaö kom fyrst út 1920. I nýju útgáfunni
er formáli eftir dr. Sören Sörensen og
inngangsritgerð eftir dr. Henrik Glahn.
Nafnaskráin sem dr. Povl Hamburger
samdi og fylgdi 2, útgáfunni er einnig með.
Anton Heiller.
Orgelsnillingurinn Anton Heiller er látinn.
Hann var fæddur í Vínarborg árið 1923.
Aðeins nítján ára gamall lauk hann prófi frá
Tónlistarháskólanum í Vín. Þrem árum
síöar var hann skipaður professor við sömu
stofnun ‘og gegndi þeirri stöðu til
dauðadags.
Frægastur var hann fyrir túlkun sína á
orgelverkum Bachs. Hann þótti einnig mjög
góður semballeikari og tónskáld. Hann
hlaut fjöldamörg verðlaun fyrir starf sitt.
Fjöldi nemenda hans er óteljandi og
útbreiddir um allan heim.
Prófessor A.H. kom hingað til íslands í
apríl 1963 og hélt tónleika í Landakots-
kirkju 17 apríl 1963. H B.
Paul Dessau andaðist 28. júní s.l. 84 ára
gamall. Hann var fæddur í Hamborg, en
starfaði lengi í Bandaríkjunum, en fluttist
svo aftur til föðurlands síns og settist að í
Austur-Þýskalandi. Hans var oft getið
meðan hann var upp á sitt besta, því að
hann var talinn meðal merkustu tónskálda
samtímans f Þýskalandi. P.D. skrifaði mikið
af kvikmyndatónlist, starfaði t.d. mikið með
Bertold Brecht. En hann samdi einnig
sinfoníur, óperur, kvartetta, kammertónlist
kantötur og kórsöngva.
Georg Fjelrad andaðist 1. des. 1979, 78
ára. Hann var einn allra mesti organleikari
Dana. Hann þótti frábær kennari og mikill
mannkostamaður.
_John Bjerkestrand
Á sl. ári lést John Bjerkestrand á besta
aldri. Hann lét mikið til sín taka í
félagsmálum Norska organistafélagsins og
var formaður þess frá 1 976.
Hann lét sig ávallt mikið varða
endurnýjun kirkjutónlistarinnar og var
mjög virkur í Musica Sacra í Noregi.
J. St.
Matti Rindell
Matti Rindell, dómorganisti við
dómkirkjuna í Kuopio í Finnlandi lést í
umferðaslysi á þessu ári (1979), aðeins 45
ára að aldri.
Matti Rindell var ekki aðeins mjög virtur
organleikari sem á fjölmörgum
tónleikaferðum, innan og utan Finnlands,
sýndi og sannaði hæfileika sína, heldur var
hann einnig drifkraftur í félagsmálum
organleikara í Finnlandi. Hann var góður
skipuleggjari og kom það vel í Ijós á
Norræna kirkjutónlistarmótinu sem haldið
var í Finnlandi s.l. ár, undirforystu hans, en
hann var formaður Norræna kirkjutón-
listarráðsins frá 1974-1979.
J. St.
52 ORGANISTABLAÐIÐ