Organistablaðið - 01.11.1981, Síða 15

Organistablaðið - 01.11.1981, Síða 15
Jósef Eriksson Sérstæðasta kirkjulega tónskáld Svía innan ramma einsöngslaga og verka fyrir fáa flytjendur er án efa Josef Eriksson (f. 1 872). Hann samdi ekki mörg verk við kirkjulega texta, en með verkum eins og " Bed att det dagas" (úr Pá hoppets dag" eftir Topelius) fyrir einsöngsrödd eða einradda kór og piano eða orgel (einnig umsamið fyrir sóló, blandaðan kór eða þriggja radda kvennakór með piano eða orgel undirleik), ,,Mikil og undursamleg eru verk þín" (úr Opinberun Jóhannesar) fyrir rödd og orgel ásamt "Post tenebras lux" (við kvæði eftir Linu Sandell) fyrir sóló, tvo blandaða kóra, orgel eða pianó, hefur Josef Eriksson auðgað sænska kirkjutónlist með verkum sem eru einföld í flutningi og samin í stíl sem einkennir þennan sérstæða höfund. Tónmál og hljómagangur skipar þessum verkum í flokk annarra verka sænskra, sem eru lituð impressionisma og rómantík, en falla að sjálfsögðu ekki að þeirri stílhugsun sem nútíma kirkjutónlist leitar eftir. Hinar sérstæðu laglínur og finlegu blæbrigði hafa skapað þeim sérstakan sess í sænskri tónlist. Flest yngri tónskáld sem semja einsöngslög hafa orðið fyrir meiri og minni áhrifum frá Josef Eriksson. G.J. þýddi. Kaflinn hér á undan er úr hinu merka riti „Kyrkomusikens historia" eftir Carl-Allan Moberg. Carl Allan Moberg (f. 1986) var prófessor í tónvísindum við háskólann í Uppsölum Af mörgum öðrum merkum ritverkum hans skulu hér aðeins nefnd „Tonkonstens historia", „Frán kyrko-och hovmusik till offentlig konsert", ,, Die liturgischen Hymnen in Sweden" og „Bachs Passioner och Höga Massa". Josef Eriksson (1872-1957) var söngkennari í Uppsölum og organleikari við Mikaels- kapelluna þar í borg. Ekki verður hér reynt að bæta miklu við það sem C.A.M. segir í kafl- anum sem hér er tilfærður. Aðeins nefnd til viðbótar þessi kirkjuleg tónverk J.E. :,,Guds jord och Guds himmel", (sex sánger om mánniskolivet eftir P. Bolinder) „Bevara Gud várt fosterland", ,,l öster stiger solen opp", „Tvá valdiga strida" og getið um nokkrar aðrartón- smíðar hans. Hann hefur samið mörg kórlög, 200 einsöngslög, 30karlakórlsög. Hljóðfæra- tónlist hefur hann einkum samið í hinum minni formum (pianolyrik). Nefnd verða hér f. piano, Sonata í d-moll, Sonatína í G-dúr, f. strokkvartett „Bukolika" (svíta) og Ad tenebras (andante) og lóks „Enkla och Melodíósa Preludier för Orgel eller Harmonium", Op. 1 Sendið blaðinu fréttir af flutningi kirkjutónlistar. ORGANISTABLAÐIÐ 15

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.