Organistablaðið - 01.11.1981, Blaðsíða 22
Antonio Corveiras
Antoníó Corveiras organisti Hall-
grímskirkju í Reykjavík hefir haldið 10
tónleika á rúmu ári í 5 kirkjum,
Akureyrar-, Hafnarfjarðar-, Kefla-
víkur-, Selfoss- og Fíladelfíu - kirkjum.
Á þessum tónleikum hefir hann leikið
um 50 verk eftir nær 40 tónskáld 9
þjóðlanda og spanna yfir tímabilið frá
1 600- til nútímans. - Áðúr hafði hann
haldið tvenna tónleika í Keflavíkur-
kirkju. - Leikur hans ber með sér
franskan „elegansa" og spænska
„litadýrð". Hann hefir með vali
verkefna sinna kynnt íslenzkum orgel-
áhugamönnum bæði gamla og nýja
músík, þá, sem hérlendir organistar
hafa að miklu leyti sniðgengið. - Því
verður ekki móti mælt að organleikar-
ar okkar hafa boðið upp á nokkuð
einhæf verkefni mest Bach og
rómantík. Þess vegna hefir tónleika-
hald Antóníós vakið athygli og víkkað
sjónarsvið margra.
Þess má geta að um þessar mundir
heldur hann myndlistarsýningu á
eigin verkum.
Antonio D. Corveiras er fæddur á Spáni og hlaut tónlistarmenntun sína í
Madrid. Hann lagði fyrir sig orgelleik og stundaði nám í París hjá André Isoir og
sótti einnig tíma hjá Gaston Litaize, Jean Langlais og Pierre Cochereau.
Hann hefur haldið orgeltónleika víða um lönd, bæði austanhafs og vestan.
Hann er nú kennari viðTónlistarskóla Keflavíkur og viðTónskóla Þjóðkirkjunnar í
Reykjavík og starfandi organisti við Hallgrímskirkju.
Organistablaðið
Útg. Félag íslenskra organleikara
Formaður: Kristján Sigtryggsson, gjaldkeri: Daníel Jónsson,
ritari: Guðný Magnúsdóttir.
Afgreiðslumaður blaðsins: Þorvaldur Björnsson
Efstasundi 37 R.
Prentað í Borgarprent.
Útgáfu önnuðust: Kristján Sigtryggsson ábm,
Páll Halldórsson og Páll Kr. Pálsson.
22 ORGANISTABLAÐIÐ