Organistablaðið - 01.10.1982, Qupperneq 17
Gísli heitir hann og er Þorsteinsson. Hann er fæddur 6. ágúst 1896 að Ytri-
Hrafnabjörgum í Hörðudalshreppi í Dalasýslu. Hann á heima í Geirshlíð (Þorgeirs-
staðahlíð) í Miðdalahreppi í Dalasýslu, þar sem hann hefur búið allt frá árinu 1922.
Þó að það sé ætlun mín að minnast aðallega organistastarfs Gísla, get ég ekki
stillt mig um að geta hans ofurlitið á öðrum starfssviðum hans.
Á árinu 1975 gafst mér tækifæri til að stija í samkvæmi í félagsheimilinu á Nes-
odda í Miðdalahreppi, þar sem Gísli var geröur að heiðursborgara Miðdalahrepps.
Þá hafði hann verið í hreppsnefndinni meira en hálfa öld og oddviti hennar 40 ár af
þeim tíma. Þetta sýnir greinilega hvilíks traust hann hafði notið meöal sveitunga
sinna. Hann var eitt sinn, ekki alls fyrir löngu, spurður af þjóðkunnum manni:
„Hvað veldur þessu trausta fylgi?"
Og Gísli lét ekki bíða svarsins lengi:
„Ég get aldrei neitað neinum um bón og útréttaði mikið fyrir aðra. Ég lét það
ganga fyrir, sem ég þurfti að gera fyrir aðra. — Ég átti góða konu, sem sá um
búskapinn á meðan ég sinnti náunganum."
Af oddvitastörfum lét hann 1978, eftir að hafa rækt þau um 40 ára skeið.
Þegar ég spurði hann um fleiri opinber störf, nefndi hann m.a. skólanefndarstörf
héraðsskólans á Laugum í Dalasýslu, formaður ræktunarsambands 17 ár, umboðs-
maður Brunabótafélags Islands var hann frá 1934, já, svo taldi hann upp fleiri
nefndir, en taldi ekki ástæðu til þess að tíunda þess konar nánar.
Bóndi reyndist hann framtakssamur, sem á fleiri sviðum.
En nú er best að snúa sér að organistastörfum hans Gísla í Geirshlíð.
Ungur var hann, þegar hann fór að þrá að leika á orgel. En aðstaða til þess var
fremur lítil. Af sjálfsdáðun fór hann að fikra sig inn í tónaheim orgelsins. hann
sagði, að upphaflega hefði það verið „fikt vegna löngunar sinnar að læra að spila
létt lög“, sagði hann. Loks tókst honum að læra undirstöðuatriði. i orgelleik hjá
ORC;ANIS'rAJ3I.ARIE> 17