Organistablaðið - 01.09.1987, Page 3

Organistablaðið - 01.09.1987, Page 3
Orgelskoðun í Ingvcrjalandi „Betur sjá augu en auga“, þannig hljóöargamall málsháttur. Þaö má segja aö hann í örlítið breyttri mynd (Betur heyra . . .) hafi verið einkunnarorö ferö- ar nokkurra organista til Ungverjalands (og Danmerkur), dagana 9 -16. apríl sl. Þeir sem tóku þátt í ferðinni voru Haukur Guölaugsson, söngmálastjóri og kona hans, Grímhildur Bragadóttir, Guöný Margrét Magnúsdóttir, organisti í Fella- og Hólasókn, Ólafur Sigurjónsson, organisti í Forsæti, Ketill Sigurjóns- son, orgelsmiöur í Forsæti og undirrituð sem er organisti í Víöstaöasókn. Tilefni ferðarinnar var eins og áður er tæpt á, að sjá og heyra með eigin skiln- ingarvitum og milliliöalaust orgel í Ungverjalandi. Þaö var lagt af staö snemma morguns þann 9. apríl frá Keflavík og var í fyrstu lotu haldið til Kaupmannahafnar, reyndar meö millilendingu í Glasgow og þótti fólki þaö lofa góöu aö farið var aö grænka hjá grönnum okkar Skotum. Á Kastrup-flugvöll vorum viö komin um miðjan dag, en þar máttum viö bíöa góöa stund meðan gerö var allsherjar leit að ferðatöskunni hans Óla, en einhverra hluta vegna haföi sá góöi gripur oröiö viöskila við eiganda sinn og virtist ætla aö skoöa heiminn upp á eigin spýtur, og fannst hún hvergi þrátt fyrir mikla leit. Þarna út á flugvöll var kominn danskur organisti, Gunnar Svensson, til þess að taka á móti okkur og var hann búinn aö búa svo um hnútana aö viö gætum skoðað orgel í þremur kirkjum næsta dag og að auki kvað hann okkur hjartanlega velkomin á kóræfingu hjá kórnum sínum um kvöldið. Þarna skildust nú leiöir, söngmálastjóri og frú fóru út í Dragor en þar ætl- uöu þau að gista, en viö hin fórum inn í miðborgina aö leita uppi hóteliö þar sem viö áttum aö búa. Það er skemmst frá því aö segja aö eftir aö vera búin að finna gististaðinn, líta aðeins inn í verslanir í miðbænum og fá okkur eitthvað í svanginn þá fórum viö á kóræfinguna hjá Gunnari Svensson, en hún var í Filips Kirke sem er úti á Amager ekki langt frá flugvellinum. Við tók- um leigubíl þarna úteftir og var bílstjórinn mikiö undrandi á því aö við værum að'fara í kirkju svona seint, honum þótti við greinilega kynlegir kvistir. (kórnum eru um 30 manns á aldrinum 16-30 ára. Þessi kór starfar í tengsl- um við kirkjuna, kemur fram á tónleikum o.þ.h.. Þau syngja bæöi kirkjulega og veraldlega tónlist og hafa ferðast heilmikiö um Evrópu, yfirleitt farið í eina utanlandsferð á ári. Þau syngja hins vegar ekki viö almennar guðsþjónustur, það eru nokkrir einsöngvarar sem sjá um aö leiða þar almennan söng. Þessi ORGANISTABLAÐIÐ 3

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.