Organistablaðið - 01.09.1987, Blaðsíða 10
Bláskegg risa eftir Bartók og Spunastofuna eftir Kodály. Óperan í Búdapest
er hið glæsilegasta hús, hún líkist nokkuð Vínaróperunni, en eröll smærri að
gerð. Þetta hús var tekið í notkun árið 1884. Eitthvað mun starfsemi þess
hafa legið niðri á stríðsárunum, en í maí 1945 var það þó opnað aftur, enda
hafði það lítið skemmst. Það var síðan endurbætt á árunum upp úr 1980 og
varopnað að nýju á 100áraafmælinu árið 1984. Þegarsýningunni lauklögð-
um við af stað til þess að leita að veitingahúsi og fundum fljótlega eitt slíkt þar
sem sígaunahljómsveit lék fyrir matargesti, m.a. á cymbalom. Eftir hina her-
legustu máltíð kvöddum við fjórmenningarnir þau Hauk og Grímhildi, en þau
ætluðu að dvelja fram yfir páskana í Búdapest, við hin þurftum hins vegar að
hverfa heim til skyldustarfanna.
Næsta morgun lögðum við af stað út á flugvöll klukkan 6 og vorum komin
til Kaupmannahafnar fyrir hádegi. Á Kastrup beið taskan hans Óla eftir hon-
um að þessu sinni, sennilega búin að fá nóg af flakki ein síns liðs. í Kaup-
mannahöfn var kalt, hiti ekki nema um 7 gráður og þaðan af minna, og það
leit út fyrir að vorsins væri enn langt að bíða. Afganginn af deginum eyddu
víst flestir í búðaráp. Morguninn eftir var svo flogið heim.
Þegar ég líttil baka yfir ferðina í heild og þau hljóðfæri sem við heyrðum og
sáum, þá stendur eitt hljóðfæri öllum hinum framar hvað hljóm snertir, það er
orgelið í Filips Kirke. Að bera ungversku orgelin saman við það er náttúrlega
óhagstætt þeim. En séu þau borin saman við orgelið í Vigerslev þá er ekki
svo ýkja mikill munur, t.d. fannst mér fallegri hljómurinn í orgelinu í Vac.
Skrifað 19. júlí 1987
Kristín Jóhannesdóttir
Organistablaðið
Útg. Félag íslenskra organleikara
Ritnefnd: Heiðmar Jónsson s. 621630, Helgi Bragason og Hörður
Askelsson formaður.
Dreifing: Þorvaldur Björnsson Efstasundi 37,104 Reykjavík s. 34680.
Stjórn Félags íslenskra organleikara: Þröstur Eiríksson formaður,
Guðni Þ. Guðmundsson gjaldkeri og Kjartan Sigurjónsson ritari.
ÍO ORGANISTABLAÐIÐ