Organistablaðið - 01.09.1987, Síða 11
Nokkrar upplýsingar um störf og stöðu
sálmabókamefndar
Ritnefnd Organistablaðsins bað mig að skrifa fáeinar línur í blaðið um það
sem helst væri að gerast í sálmabókarnefnd.
Á Prestastefnu sem haldin var í Borgarnesi í lok júní lagði nefndin fram
bréf með upplýsingum um störf og stöðu nefndarinnar. Þetta plagg er ætlað
til kynningar og á því ekki síður erindi til organista en presta, og vil ég verða
við ofangreindri beiðni með því að birta bréfið hér. Er það gert með þeim ósk-
um að þeir organistar sem ekki hafa þegar sent okkur línu en vilja leggja sitt
af mörkum viö val á sálmum í væntanlegt hefti, sem viö köllum reynsluhefti,
hafi samband við okkur í nefndinni sem allra fyrst.
Jón Helgi Þórarinsson
1. Sálmabókanefnd sú sem nú situr var skipuð af kirkjuráði sumarið 1985. í
henni eiga sæti Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri, sr. Bolli Gústavs-
son, sr. Hjálmar Jónsson, HörðurÁskelsson organleikari og sr. Jón Helgi
Þórarinsson sem erformaður nefndarinnar. Samþykkt kirkjuþings sem er
grundvöllur að starfi nefndarinnar er frá árinu 1982. Þar segir að „eðlilegt
sé að auka við og endurskoða sálmabókina“. Ekki er kveðið nánar á um
hlutverk skipaðar nefndar í samþykktinni, en nefndin hefur frá upphafi
mótað stefnu sína og starf í samráði við biskup og kirkjuráð. Það er vilji
þeirra að hlutverk nefndarinnar sé að taka saman efni í viðbæti við sálma-
bók kirkjunnarog skuli því verki lokið helst fyrir árslok 1987. Nefndin hefur
frá því haustið 1985 haldið 13 fundi, sem hafa staðið frá einum og upp í
þrjá daga.
2. Hlutverk nefndarinnar er samkvæmt ofanskráðu að taka saman efni í við-
bæti við sálmabók kirkjunnar. Nefndin hefur komið sér saman um hvert
það efni skuli vera út frá neöanskráðum forsendum og tillögum:
a) í kjölfar samþykktar kirkjuþings frá árinu 1982 um að „eðlilegt sé að
auka við og endurskoða sálmabókina", geröi til þess kvödd undirbún-
ingsnefnd könnun meðal presta og organista sem leiddi í Ijós, að vilji
var til að fá aftur inn í sálmabók nokkurn fjölda þeirra sálma sem niður
höfðu verið felldir með útkomu sálmabókarinnar frá 1972. Fáeinir
sálmar áttu verulegu fylgi aö fagna, eins og fermingarsálmarnir „Leið
oss Ijúfi faðir" og „Blessun yfir barnahjörð".
ORGANISTABLAÐIÐ 11