Organistablaðið - 01.09.1987, Side 15

Organistablaðið - 01.09.1987, Side 15
Frá organistanámskeiðinu 1987 Eins og undanfarin 12 ár gekkst Söngmálastjóri fyrir námskeiði fyrir organ- ista í Skálholti dagana 17. júní til 28. júní. í fyrravarsérstaklegagert ráðfyrir kennslu handa einsöngvurum og svo var líka í ár. Tveir fyrstu dagar nám- skeiðsins voru sérstaklega ætlaðir þeim sem ekki höfðu áður komið á organ- istanámskeið, en á þriðja degi bættust söngvarar og fleiri organistar í hópinn. Að jafnaði voru um 40-50 manns á námskeiðinu upp frá því þar til kórfólkið bættist við fimmtudagskvöldið 25. júní, en þá urðu þátttakendur 200-250. Námskeiðinu lauk eins og undanfarin ár með messu og altarisgöngu í Skál- holtskirkju. Þetta námskeið er það þrettánda, sem Haukur Guðlaugsson hefur haldið síðan hann tók við embætti Söngmálastjóra. Þau hafaveriðmeð hefðbundnu sniði þó þar hafi ákveðin þróun átt sérstað. I fyrstu með þátttöku kórfólksins, sem bættist við á síðustu dögum námskeiðsins, þ.e. dagarnir frá föstudegi til sunnudags. Sú nýbreytni varð strax vinsæl og hafa oftast komið 200-250 kórfélagar víðs vegar að af landinu og búið í svefnpokum heima í Skálholti eða niður í Sumarbúðum, og þrátt fyrir mikil þrengsli hefur aðsóknin verið mikil og sama fólkið komið ár eftir ár. Sama máli gegnir raunar um organist- ana, þó að þeir búi á heimavistum skólans, stundum fjórir í herbergi, sem er ætlað tveimur og í ofanálag er oft sett inn hljóðfæri til að æfa eða kenna á. Þessi námskeið hafa mikið verið sótt af organistum, sem litla menntun hafa hlotið en sumir hafa nokkra reynslu í að spila í kirkju og jafnvel stjórna kór. Þessir organistar hafa komið ríkari og reynslumeiri heim aftur, sumir hafa jafnvel farið út í frekara tónlistarnám, en flestir hafa haldið áfram að sækja þekkingu og uppörvun til námskeiðanna í Skálholti. Fyrir nokkrum árum fékk söngmálastjóri celloleikarann Sr. Gunnar Björns- son til að æfa organistana i að leika undir hjá einleikara, síðan hafa verið Gunnar Egilsson klarinettuleikari, Sr. Gunnar Björnsson annað ár og nú síð- ast Jón Heimir Sigurbjörnsson flautuleikari. Þeir eru allir færir hljóðfæra- leikarar og bæði gaman og gagn fyrir organistana að kynnast leik þeirra, verkunum sem æfa skal og síðast en ekki síst að reyna sig við undirleikinn. Á námskeiðinu 1986 hófst nýr þáttur í organistanámskeiðum. Þá var ein- söngvurum gefinn kostur á að koma og fá raddþjálfun og æfa með undir- leikara og síðan að syngja sitt lag eða sín lög á árlegri kvöldskemmtun, sem er (tengslum við námskeiðið og er haldin að laugardagskvöldi í Aratungu. Á OR( iAN ISTABLAMÐ 15

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.