Organistablaðið - 01.12.1987, Side 1
ORGANISTABLAÐIÐ
Kjaramál organlsta
Umræða um kjaramál hefur verið ofarlega á baugi í þjóðfélaginu síðustu
misseri. Miklar breytingar hafa orðið á launatöxtum og á ýmsum ytri aðbún-
aði margra stétta. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt að við organistar lát-
um þessi mál til okkar taka. Núgildandi kjarasamningar okkar er frá 1975.
Hingað til hefur ekki margt ýtt á eftir endurnýjun og breytingum, þar eð samn-
ingurinn kveður á um að laun organista skuli fylgja launum tónlistarkennara.
Því hafa laun organista alls ekki staðið í stað, heldur hafa þau fylgt þeim
tímabæru lagfæringum sem gerðar hafa verið á launum kennara (þar með
talið tónlistarkennara) upp á síðkastið. Áðurnefndur samningur var til mikilla
bóta þegar hann var gerður á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan og er nú þörf á gagngerri endurskoðun samningsins.
f fyrsta lagi þarf nýr samningur að ná til landsins alls. Núverandi samningur
gildir aðeins fyrir Reykjavíkurprófastsdæmi, þó hann hafi verið notaður til við-
miðunar víðar. En hverjir verða viðsemjendur FÍO þegar semja á fyrir alla
organista á landinu? Hér er nokkur vandi á höndum. Eðlilegast væri kannski
að kirkjuráð yrði viðræðuaðili fyrir hönd kirkjunnar og hvert prófastsdæmi fyrir
sig staðfesti sioan nýjan samning.
f öðru lagi þarf samningurinn að innihalda nákvæma starfslýsingu þar sem
vægi hvers þáttar sé tilgreint, svo auðvelt sé að tilgreina starfssvið organist-
ans og reikna út stöðustærðina. Núverandi samningur segir í raun ekkert um
stöðustærðina, heldur nefnir aðeins launahlutfall. Hér er ekki um sama hlut-
inn að ræða, því mikið af starfi organistans er unnið í álagsvinnu þ.e. á kvöld-
in og á helgidögum og ber því að líta svo á að hluti af launum organistans séu
álagsgreiðslur og hlýtur stöðustærðin að vera minni en launahlutfallið. Mark-
miðið okkar hlýtur að vera, að sem flestir organistar eigi möguleika á heilum
stöðum, því hér er um mikið og krefjandi starf að ræða, sem erfitt er að þurfa
að stunda í hjáverkum. Vissulega væri best að organistum væri þannig trúað
fyrir heilli stöðu (eins og t.d. prestum) þar sem meginstarfssvið væri tilgreint,