Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 1

Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 1
ORGANISTABLAÐIÐ Kjaramál organlsta Umræða um kjaramál hefur verið ofarlega á baugi í þjóðfélaginu síðustu misseri. Miklar breytingar hafa orðið á launatöxtum og á ýmsum ytri aðbún- aði margra stétta. Það er bæði eðlilegt og nauðsynlegt að við organistar lát- um þessi mál til okkar taka. Núgildandi kjarasamningar okkar er frá 1975. Hingað til hefur ekki margt ýtt á eftir endurnýjun og breytingum, þar eð samn- ingurinn kveður á um að laun organista skuli fylgja launum tónlistarkennara. Því hafa laun organista alls ekki staðið í stað, heldur hafa þau fylgt þeim tímabæru lagfæringum sem gerðar hafa verið á launum kennara (þar með talið tónlistarkennara) upp á síðkastið. Áðurnefndur samningur var til mikilla bóta þegar hann var gerður á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og er nú þörf á gagngerri endurskoðun samningsins. f fyrsta lagi þarf nýr samningur að ná til landsins alls. Núverandi samningur gildir aðeins fyrir Reykjavíkurprófastsdæmi, þó hann hafi verið notaður til við- miðunar víðar. En hverjir verða viðsemjendur FÍO þegar semja á fyrir alla organista á landinu? Hér er nokkur vandi á höndum. Eðlilegast væri kannski að kirkjuráð yrði viðræðuaðili fyrir hönd kirkjunnar og hvert prófastsdæmi fyrir sig staðfesti sioan nýjan samning. f öðru lagi þarf samningurinn að innihalda nákvæma starfslýsingu þar sem vægi hvers þáttar sé tilgreint, svo auðvelt sé að tilgreina starfssvið organist- ans og reikna út stöðustærðina. Núverandi samningur segir í raun ekkert um stöðustærðina, heldur nefnir aðeins launahlutfall. Hér er ekki um sama hlut- inn að ræða, því mikið af starfi organistans er unnið í álagsvinnu þ.e. á kvöld- in og á helgidögum og ber því að líta svo á að hluti af launum organistans séu álagsgreiðslur og hlýtur stöðustærðin að vera minni en launahlutfallið. Mark- miðið okkar hlýtur að vera, að sem flestir organistar eigi möguleika á heilum stöðum, því hér er um mikið og krefjandi starf að ræða, sem erfitt er að þurfa að stunda í hjáverkum. Vissulega væri best að organistum væri þannig trúað fyrir heilli stöðu (eins og t.d. prestum) þar sem meginstarfssvið væri tilgreint,

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.