Organistablaðið - 01.12.1987, Blaðsíða 4
Annar dagur 28. september
Hin eiginlega námsstefna hófst síöan í Norræna húsinu kl. 10 þann 28.
september. Forseti guöfræöideildar dr. Björn Björnsson setti námsstefnuna
og bauð alla velkomna sérstaklega þá Svein Ellingsen skáld og Trond
Kverno tónskáld.
Sr. Sigurjón Guðjónsson flutti fyrsta fyrirlesturinn en hann var um sálma
frumkirkjunnar, Davíðssálm og biblíulega sálma. Fjallaði hann um sögu
þeirra og þróun og einnig um fyrstu sálmaskáldin þá Ambrosius, Niketas og
Prudentius.
Næst flutti dr. Bjarni Sigurðsson dósent fyrirlestur sinn um Lútherssálma á
íslandi. Tók Bjarni tvo páskasálma og þrjá hvítasunnusálma og sýndi og bar
saman þýðingar þeirra í gegnum aldirnar.
Eftir hádegisverðarhlé varð sjónarhorn tónlistarinnar ráðandi. Hörður
Áskelsson lektor fjallaði um „Grallaratímabilið" 1594-1779. Útskýrði hann
m.a. hvernig hefðbundin þýsk sálmalög breyttust í meðförum genginna kyn-
slóða og aðlöguðust íslenskri siðvenju í tónlist. Meö dæmum sýndi Hörður
hvernig lag skipti um tóntegund og „bassus“ þ.e. tvísöngsrödd bættist við.
Lagið við „Gefðu að móðurmálið mitt“ erdæmi um þessa þróun.
Fjórði fyrirlesturinn var í höndum Svein Ellingsen og Trond Kverno. Fyrst
fjallaði Svein Ellingsen um þann kveðskap sem grundvallar hina nýju norsku
sálmabók. Voru þar fimm þættir lagðir til grundvallar. 1. Kirkjusögulegir
sálmar. 2. Samkirkjulegir sálmar. 3. Sálmar af þjóðlegum grunni. 4. Sálmar
í messunni og biblíulegir sálmar. 5. Nýir og nýendurþýddir sálmar. Trond
Kverno fjallaði síðan um sama efni frá sjónarhorni tónlistarinnar og sagði að
ein mikilsverðasta nýjungin í norsku bókinni væri „Litúrgíski" þátturinn.
Eftir kaffihlé kynntu Trond Kverno og Svein Ellingsen nýja sálma úr nor-
rænum sálmabókum með tóndæmum og þátttöku viðstaddra. Eftir stuttar
fyrirspurnir og umræður enduðu viðstaddir góðan dag með Vesper í kapellu
háskólans.
4 ORGANISTABLAÐIÐ