Organistablaðið - 01.04.1991, Page 9
Stjórnar og félagsfundur í F.Í.O. í Hallgrímskirkju
1. júní 1 990kl. 17.45
Fundargerö:
1 - 3. Stjórnarfundur.
4. í framhaldi af stuttum stjórnarfundi setti formaöur félagsins Kjartan
Sigurjónsson almennan félagsfund.
Hann skýrði frá gangi kjaraviðræðna og fyrstu viðbrögðum
viðsemjenda félagsins, fjárhagsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis.
Málið er í skoðun og beðið er eftir gagntillögum fjárhagsnefndar.
Formaður skýrði frá störfum stjórnar síðustu vikur, bréfaskriftum
félagsins o.fl.
5. Orgel Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson tók til máls og lýsti ánægju
sinni yfir því hversu vel gengi að fá ný orgel í kirkjur höfuðborgar-
innar, og hversu vel væri vandað til þeirra.
Hörður sagði að söfnun fjár til kaupa á nýju orgeli í Hallgrímskirkju
gengi mjög vel. Um 10% pípnanna eru þegar seld. Seljist allar píp-
urnar munu um 43 milljónir skila sér í orgelsjóö.
Hönnun orgelsins er hafin hjá Klais og fór Hörður út til þess að
ákveða form spilaborðs o.fl.
Hörður dreifði „Disposition” orgelsins og kynnti hana. Nokkrar
umræður urðu um hljóðfærið.
Að lokum gengu fundarmenn fram í forkirkju Hallgrímskirkju, þar
sem teikningar voru skoðaðar. Ósk kom fram um að kannað yrði
hverjir möguleikar séu á öðru fótspili til skiptanna fyrir þá sem kjósa
radíal fótspil.
Fundi slitið kl. 19.50
Hörður Áskelsson
Til sölu 11 radda pípuorgel, sem áöur var í
Sauöárkrókskirkju. Verö eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Rögnvaldur Valbergsson,
organisti í síma 95-35871.
ORGANISTABLAÐIÐ 9