Organistablaðið - 01.04.1991, Side 10
Aöalfundur F.Í.0.1990
Haldinn í Hallgrímskirkju miövikudaginn 26. september kl. 20.00
1. Formaður, Kjartan Sigurjónsson, bauö fundarmenn velkomna og
flutti skýrslu sína. Hann byrjaöi á því aö skýra frá þeirri breytingu
sem varö er fyrrum formaöur, Þröstur Eiríksson, flutti af landi
brott, og aö ritari tók viö formensku til þessa aðalfundar.
a) Hann sagöi frá uppsögn kjarasamninga og núverandi stööu
samningaumleitana. í gangi eru viðræður á milli F.Í.O. og
fjárhagsnefndar Reykjavíkurprófastsdæmis. Einn fundur hefur
verið haldinn meö kjaranefnd F.Í.O og fjárhagsnefnd, en áöur
heföi kjaranefndin skipuö þeim Kjartani Sigurjónssyni, Kristjáni
Sigtryggssyni og Marteini H. Friðrikssyni, undirbúiö drög aö
samningi, sem eru um margt nýstárleg og hafa verið kynnt
félögum í Reykjavíkurprófastsdæmis. Formaöur rifjaöi upp
helstu atriöi téöra samningadraga.
b) Haldnir voru tveir félagsfundir í Hallgrímskirkju og í Skálholti.
Stjórnin hélt átta fundi.
c) Formaöur sagöi frá töfum á útgáfu Organistablaösins og aö nú
yröi ný ritnefnd kjörin sem vonandi verður farsæl í störfum.
d) Norræna kirkjutónlistarmótið veröur haldiö á íslandi 1992.
Formaöur skýröi frá þeirri skoöun stjórnar aö rétt skuli aö ráöa
starfskraft til aö annast umsjón undirbúnings.
e) Þaö kom einnig fram aö á næsta ári (1991), eru 40 ár liðin frá
stofnun F.Í.O. Þaö gefur tilefni til einhverskonar hátíöahalda.
2) Gjaldkeri, Kristín Jóhannesdóttir, lagöi fram reikninga og kynnti
niöurstööur. Rekstrarhagnaöur kr. 11.468,75
3) Ritari geröi málefni blaðsins aö umræöuefni, nýja möguleika til
útgáfu í Ijósi bætts fjárhags o.fl. Glúmur Gylfason benti á þá
10 ORGANISTABLAÐIÐ