Organistablaðið - 01.04.1991, Side 16

Organistablaðið - 01.04.1991, Side 16
Frá sálmabókarnefnd Sálmabókarnefnd sem brátt sendir frá sér sálmahefti var skipuð af Kirkjuráði sumarið 1985. í henni eiga sæti sr. Jón Helgi Þórarinsson, sem var skipaður formaður nefndarinnar, sr. Bolli Gústavsson, sr. Hjálm- ar Jónsson, Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri (Glúmur Gylfason starfaði fyrir hann í nefndinni árið 1989) og Hörður Áskelsson orgel- leikari. í ársbyrjun 1987 kallaði nefndin sr. Kristján Val Ingólfsson og Þröst Eiríksson orgelleikara til samstarfs við sig. Einnig hefur nefndin leitað til sérfróðra manna um málfar. Nefndin hefur verið sammála um að skoða starf sitt sem þátt í því sálmastarfi kirkjunnar sem stöðugt þarf að eiga sér stað. Sálmahefti þetta ber að líta á sem reynsluhefti, framhald núverandi sálmabókar og skref til nýrrar bókar. Þær forsendur sem liggja að baki vali á sálmum og efni í bókina eru m.a. þessar (sjá annars greinargerð nefndarinnar í sálmaheftinu sjálfu): * Sálmar heftisins eiga að efla almennan safnaðarsöng. Laglínur, tónhæð og útsetningar eru við það miðuð. Nefndin bendir um leið á mikilvægi þess að gefin verði út sérstök hefti með fjölradda sálmum og kirkjulegum kórverkum fyrir kirkjukórana að flytja við messur og önnur tækifæri. í heftinu er 66 sálmar auk biblíulegra inngöngusálma og sálma á táknmáli. * Nefndin hefur talið það eitt af hlutverkum sínum að kynna hér á landi þau sálmalög er tilheyra sameiginlegum arfi kristinnar kirkju og eru mikið sungin í kirkjum annarra þjóða en er ekki að finna í okkar sálma- bók. Hefur nefndin í því sambandi kynnt sér það mikla sálmastarf sem unnið hefur verið hin síðari ár meðal systurkirknanna á Norðurlöndum og hefur fengið nokkra þá sálma þýdda og birtir hér. Ýmsir af sálmum sálmabókarinnar frá 1972 er sjaldan eða ekki notaðir vegna þess að lagið við þá hefur ekki reynst vel. Hefur verið reynt að bæta úr því að nokkru leyti í þessu hefti og eru nokkrir sálmar birtir þar með nýju lagi. Ýmsir af sálmum sömu bókar eru lítið sungnir af því að þeir hafa ekki fengið neina kynningu. Nefndin lítur svo á að eitt hlutverk sitt sé að kynna efni sálmabókarinnar um leið og hún kemur nýju efni á framfæri. 16 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.