Organistablaðið - 01.04.1991, Síða 23
veröa í Víðistaðakirkju og hefjast kl. 17.00. Þar flytja kórarnir sam-
eiginlega 7 verk eftir ýmsa höfunda og einnig munu nokkrir kórar flytja
sjálfstæða dagskrá. Kórdagurinn hefst kl. 09.00 um morguninn með
samæfingum og endar með sameiginlegum kvöldverði og skemmtun
um kvöldið.
Organistaskipti í Kjalanesprófastsdæmi:
Grindavíkurkirkja: Siguróli Geirsson tók við starfi organista þann
1. september 1990 af Svavari Árnasyni. Víðistaöakirkja: Úlrik
Ólason gegnir nú starfi organista í ársleyfi Kristínar Jóhannesdóttur.
Garöakirkja: Ferenc Utassi gegnir nú starfi organista í ársleyfi Þrastar
Eiríkssonar. Keflavíkurkirkja: Einar Örn Einarsson tók við starfi
organista þann 1. september s.l. af Erni Falkner, sem nú gegnir starfi
organista í Skálholtsprestakalli í Árnessýslu. Hvalsnes- og
Útskálakirkjur: Anna Guðmundsdóttir lét af störfum um s.l. áramót
og við tók Svavar Sigurðsson.
Fleira ekki títt úr prófastdæminu að þessu sinni.
Siguróli Geirsson, söngmálafulltrúi.
Fréttir úr Borgarfjaröarprófastsdæmi
Akranes: Tónlistarlíf viö Akraneskirkju hefur verið mjög blómlegt í
vetur. Við guðsþjónustu í september 1990 fluttu Guðrún Ellertsdóttir
sópran, Unnur Arnardóttir alt, Indriði Valdimarsson tenór og Kristján
Elís Jónasson bariton, kafla úr kantötum BWV 78 og 140 eftir J. S.
Bach, og organisti kirkjunnar lék þætti úr Partítunni yfir sálmalagið “Sei
gegrússet Jesu gútig” BWV 768. 7. október flutti Kirkjukór Akraness
biblíumótettu eftir Melchior Franck. 1. sunnud. í nóvember flutti
kirkjukórinn ásamt Guðrúnu Ellertsdóttur sópran og hljómsveit litla
messu eftir J. Haydn “Kleine orgelmesse" í B dúr. 18. nóember. var
tónlistin helguð minningu Césars Franck, Organistinn lék “Þastorale”
og skipti verkinu í þrjá kafla (sem forspil, eftir ræðu og eftirspil), undir
útdeilingu söng Laufey Helga Geirsdóttir sópran, “Þanis angelicus” úr
ORGANISTABLAÐIÐ 23