Organistablaðið - 01.04.1991, Qupperneq 25

Organistablaðið - 01.04.1991, Qupperneq 25
björg Þorsteinsdóttir. Tónleikar þessir eru til minningar um kórfélaga, Friöjón Sveinbjörnsson sparisjóösstjóra, sem lést s.l. haust. Organisti og söngstjóri Borgarneskirkju er Jón Þ. Björnsson. í Hvanneyrarkirkju var í desember s.l. afhent minningargjöf, Ijósakross, til minningar um fyrrum organista kirkjunnar, Jón Ólaf Guömundsson, sem lést fyrir aldur fram í maí 1985. Haldin var sérstök guðsþjónusta af þessu tilefni, sóknarpresturinn séra Agnes M. Sigurðardóttir þjónaöi fyrir altari, séra Ólafur Jens Sigurösson fyrr- verandi sóknarprestur prédikaöi og vígöi Ijósakrossinn. Kirkjukórinn söng undir stjórn organistans Hannesar Baldurssonar, Siguröur Pétur Bragason óperusöngvari söng viö undirleik Jóns Ól. Sigurðssonar. Á aöventunni var haldið sameiginlegt aöventukvöld allra sókna í Hvanneyrarprestakalli og var þaö haldið í félagsheimilinu Brún í Bæjar- sveit. Þar sungu Kirkjukór Hvanneyrar og Kór Bæjarkirkju undir stjórn Hannesar Baldurssonar viö undirleik Péturs Jónssonar, organista Bæjarkirkju. Einnig söng Barnakór Andakílsskóla undir stjórn Hannesar. Ólafur Flosason óbóleikari lék einleik á óbó viö undirleik Péturs. Börn fluttu helgileik. Saurbæjarprestakall: Á. s.l. ári voru kórar Hallgrímskirkju í Saurbæ og Leirárkirkju sameinaðir og heitir kórinn nú Kirkjukór Leirár og Saur- bæjarsókna og sér hann um söng viö athafnir í báöum þessum kirkjum. Viö Innra-Hólmskirkju starfar einnig kirkjukór og æfir hvor kór einu sinni í viku. Aöventukvöld var haldið í Hallgrímskirkju. Þar söng kirkjukórinn undir stjórn organistans, Kristjönu Höskuldsdóttur, einnig söng Barna- kór Heiðarskóla, söngstjóri er Ragna Kristmundsdóttir sópran- söngkona, sem einnig söng einsöng. í Innra-Hólmskirkju var aðventukvöld 9. desember. Þar söng kirkjukórinn ásamt barnakór úr sókninni undir stjórn organistans Krist- jönu Höskuldsdóttur, einsöngvari var Laufey Helga Geirsdóttir sópran. Sunnudaginn 16. desember s.l. var Leirárkirkja tekin í notkun á ný eftir gagngera breytingu, þar sem m.a. öll teppi voru fjarlægð úr kirkj- unni. Viö þessa messu þjónaöi sóknarpresturinn séra Jón Einarsson prófastur, kór kirkjunnar söng undir stjórn organistans, Kristjönu Höskuldsdóttur, Melaleiti. Björgvin Tómasson orgelsmiöur í Mosfellsbæ er nú aö smíöa nýtt 6 radda pípuorgel fyrir Leirárkirkju sem væntanlegt er meö vorinu. ORGANISTABLAÐIÐ 25

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.