Organistablaðið - 01.04.1991, Blaðsíða 27

Organistablaðið - 01.04.1991, Blaðsíða 27
Fréttapistill frá kór Stykkishólmskirkju: Áriö 1989-90 var mikið starf unniö hjá kórunm undir stjórn Ronalds Turner. Sungiö var á 3 tónleikum í Grundarfjaröarkirkju og Breiöabliki um haustið og svo jólin út á þrettándanum í Stykkishólmskirkju á smíðastigi. Kórinn söng viö athöfn í Baldri, Breiöafjaröarferjunni þegar hún var blessuð, lagöi til söng á M-hátíö á Vesturlandi um vorið og söng viö blessun nýrrar íþróttahallar í Stykkishólmi s.l. haust. Kórinn flutti ýmis verk meir en hálfa stund fyrir athöfnina og einnig samsöng meðan altarisgangan fór fram undir stjórn Ronalds Turner viö undirleik Friðriks V. Stefánssonar í Grundarfiröi á orgel og Snæbjörns Jónssonar og Daða Þórs Einarssonar á trompet og Jennýar Steinarsdóttur á flautu. Sigríöur B. Kolbeins, söngmálafulltrúi. Fréttir úr Skagafjaröarprófastsdæmi Flóladómkirkja: Sunnudaginn 9. sept. 1990 voru tónleikar í Flóladómkirkju. Flytjendur voru þau Flelga Baldursdóttir sópran, Sigurdríf Jónatansdóttir mezzósópran, Fllíf ísaksdóttir þverflautuleikari og Rögnvaldur Valbergsson orgelleikari. Sungin voru verkin Domine Deus, eftir Vivaldi: Ave verum corpus, eftir W. A. Mozart: Panis angelicus, eftir C. Franck: einnig verk eftir F. Schubert og Beethoven. Flaututónlist eftir Telemann, Loeillet, o.fl. Orgelverk eftir J.S: Bach, Boellmann, Lefebure Wely o. fl. Sauðárkróksirkja: í desember endurvígði Flerra Ólafur Skúlason biskup, kirkjuna eftir stækkun og breytingar. Einnig var vígt nýtt orgel, er þaö Allan digital rafmagnshljóöfæri. Viö vígsluna söng ung söngkona, Svana Berglind Karlsdóttir, Ave María, eftir Fr. Schubert. Um kvöldiö var síðan aöventukvöld og var þar fjölbreyttur tónlistar- flutningur. Sunnudaginn 30 des. 1990 hélt organisti kirkjunnar, Rögnvaldur Valbergsson, orgeltónleika. Lék hann verk eftir J.S. Bach, Buxtehude, Widor, C. Franck og Lefebure Wely. Framundan er Sæluvika og í tilefni hennar veröa kirkjukvöld í Sauöárkrókskirkju 8. og 9. apríl 1991 og veröur þar fjölbreytt tónlistar- dagskrá og verður hluti hennar helgaöur Eyþóri Stefánssyni, tónskáldi sem veröur 90 ára á þessu ári. Rögnvaldur Valbergsson, söngmálafulltrúi. ORGANISTABLAÐIÐ 27

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.