Organistablaðið - 01.04.1991, Page 28

Organistablaðið - 01.04.1991, Page 28
Kirkjulistavikaá Akureyri Áriö 1959 var aö frumkvæöi Herra Péturs Sigurgeirssonar, biskups, sem þá var sóknarprestur viö Akureyrarkirkju haldin Kirkjuvika í Akur- eyrarkirkju. Þær hafa síöan verið haldnar annaö hvert ár. Áriö 1989 var haldin Kirkjulistavika aö frumkvæöi Björns Steinars Sólbergssonar. Ákveöiö var aö halda kirkjulistavikur annaö hvert ár á móti kirkjuvikum. Dagskrá Kirkjulistaviku 1991: Sunnudagur 21. apríl: Kl. 11.00: Fjölskyldumessa. Helgileikur skólabarna. Kl. 14.00: Hátíðarsetning og opnuö myndlistarsýning í safnaðarheimilinu. Kl. 17.00: Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands. M.a. flutt Sinfónía nr. 3 eftir Camille Saint Saéns fyrir sinfóníuhljómsveit og orgel. Einleikari Björn Steinar Sólbergsson. Einnig flutt nýtt verk eftir Jón Nordal. Mánudagur 22. apríl: Vesper í Akureyrarkirkju kl. 18.00. Þriöjudagur 23. apríl: Hringborösumræöur: Tengsl hinna ýmsu greina lista viö kirkju og guðfræði. Fyrirlesarar: Sr. Kristján Valur Ingólfsson, sr. Þórhallur Hösk- uldsson, Jón Hlööver Áskelsson tónskáld, Signý Pálsdóttir leikhús- stjóri og Eiríkur Þorláksson listfræöingur. 23. , 24. og 26. apríl: Orgeltónleikar Björns Steinars Sólbergssonar og orgelnemenda Tónlistarskóla Akureyrar kl. 12.00 - 13.00. Ritningarlestur. Súpa og brauö á eftir. 24., 25. og 26. apríl: Leikfélag Akureyrar sýnir leikrit Björgvins Guömundssonar „Skrúös- bóndinn" í leikgerö Jóns Stefáns Kristjánssonar kl. 21.00 (samstarf Leikfélags Akureyrar og Akureyrarkirkju). Föstudagur 26. apríl: Vesper í Akureyrarkirkju kl. 18.00. Laugardagur 27. apríl: Ljóöatónleikar í safnaðarheimilinu kl. 17.00. Margrét Bóasdóttir sópran og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari (í samstarfi meö Tónlistarfélagi Akureyrar). Frumflutt veröa þrjú Ijóö eftir Jónas Tómasson, sem samin voru sérstaklega fyrir Kirkjulistavikuna. Sunnudagur 28. apríl kl. 14.00: Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju. Herra Sigurbjörn Einarsson biskup predikar. Kór Akureyrarkirkju, einsöngvarar og félagar úr Kammersveit Akureyrar flyrja „Missa Brevis" í C-dúr KV 259 („Orgelmessan") eftir W. A. Mozart. Stjórnandi er Björn Steinar Sólbergsson. 28 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.