Organistablaðið - 01.04.1991, Síða 29
SYNGIÐ, LEIKIÐ, LOFIÐ DROTTIN
Ný bók fyrir barnakóra.
Söngmálastjóri hefur gefiö út nýja bók meö 5 sálmalögum raddsettum
fyrir barnakór. Bókin er 25 blaðsíður í A4 broti. Guðmundur Eiríksson
frá Selfossi raddsetti öll lögin. Er það hluti af cand. ped. prófi í tónlist
sem hann lýkur frá Kennaraháskóla Danmerkur. Leiðbeinandi hans í
þessum hluta námsins var John Hoybye. Textar voru fengnir úr fórum
Sálmabókarnefndar. Lögin eru sitt úr hverri áttinni, en eiga það
sameiginlegt að vera aðgengileg börnum og finnast ekki í hefð-
bundnum sálmasöngsbókum íslenskum. Raddsetningarnar eru
einfaldar og miðaðar við þarfir barnakóranna sem nú eru að spretta upp
við kirkjurnar. Þannig má syngja allt niður í einraddað það sem skrifað er
fyrir þrjár raddir, enda fylgir undirleikur öllum lögunum.
Undirleikur er fyrir orgel eða píanó og flautur. Blandaður kór getur verið
með í einu tilviki.
Sveinn Eyþórsson og Eyþór Þorláksson settu bókina, sem er ríkulega
skreytt teikningum eftir Rut Magnúsdóttur organista á Eyrabakka.
Bókin er til sölu hjá Söngmálastjóra og kostar 350 krónur.
Nokkuð hefur verið unnið að næstu barnakórabók sem einnig verður
sniðin að þörfum barnakóranna fyrir einfalt efni með undirleik. Líkur eru
á að útkoma hennar bíði þess að takist að selja upp í kostnað við þá
bók sem nú er að koma út.
Leiöréttingar:
í síöasta tölublaöi Organistablaðsins voru nokkur atriði sem þarf að leiö-
rétta:
Á blaösíðu 3 eru taldir upp ýmisir þeir aöilar sem tóku þátt í samsöng á
Suðurnesjunum, en þar féll niður nafn Gróu Hreinsdóttur organista
sem eins af söngstjórunum.
Á blaðsíðu 7 misritaöist nafn félaga okkar Sigurðar ísólfssonar undir
mynd.
Á baksíöu færðist til skilgreining á nokkrum röddum þannig að radd-
irnarnr. 23 Dulcian16'og nr. 24 Kajmmhorn 8'svo og Tremulant sem
eiga aö vera í III. boröi, Svellverki, falla undir fótspilið. Raddir í fótspili
byrja á nr. 25 Subbass 16'.
ORGANISTABLAÐIÐ 29