Organistablaðið - 01.12.1991, Síða 1

Organistablaðið - 01.12.1991, Síða 1
ORGANISTABIAÐIÐ Litið um öxl á afmælisári Afmælisdagur F.Í.O. er jafnan hátíðisdagur. Svo viil nefnilega til að stofndag fé- lagsins ber upp á sjálfan Þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Þennan dag árið 1951 var félagið stofnað og fyrsta stjórnin kjörin og vildi svo til að allir hétu stjórnarmeðlimirnir sama nafni nefnilega Páll. Ekki er ætlunin að rekja sögu félagsins hér nú, þótt það verkefni væri verðugt og áhugavert en hyggja þarf að því með tímanum. Með því að fundargerðabókin sem ég lýsti eftir í síðasta blaði er komin fram, ætti hún að létta slíka sagnritun. Eins og fram kom á aðalfundinum 15. september s.l. hefur félagið eflst mjög undanfarin misseri og mátti það svo sannarlega. Ég tel kjarasamninginn sem við náð- um við Reykjavíkurprófastsdæmi marka tímamót í sögu organistastéttarinnar á Is- landi og vera þá mestu viðurkenningu sem störf okkar hafa til þessa fengið. En vandi fylgir vegsemd hverri, við megum aldrei láta það á okkur sannast að við stöndum ckki undir þeim kröfum sem til okkar eru gerðar. í lok októbermánaðar kom norræna dómnefndin saman og gekk frá dagskrá norræna kirkjutónlistarmótsins sem haldið verður á okkar vegum dagana 18.-21. júní 1992. Það er því Ijóst á þessari stundu hvað kemur í okkar hlut af flutningi tónverka á þessu tónlistarmóti. Ég hef áður drepið á það að vert væri að minnast afmælis félagsins á eftirminnileg- an hátt. Nú standa yfir viðræður við Ríkisútvarpið urn þætti í dagskránni þar sem ljósi sé varpað á starf organistans, hljóðfæri þau sem til eru í landinu og upptökur með sem flestum okkar. Úr þessu yrði þó varla fyrr en í byrjun næsta árs. Á síðasta aðalfundi kom fram tillaga um að efna til ráðstefnu með prestum og organistum um tónlistarflutning við hjónavígslur í því augnamiði að marka einhverja stefnu um slíkan flutning. Þykir mönnum sem komið sé f hið mesta óefni í þessum málum og nauðsyn beri til að kveða á um hvað er viðeigandi og hvað ekki. Ég komst að því nýlega að helgisiðanefnd þjóðkirkjunnar hefur einnig slík áform, og munum við f samstarfi við téða nefnd efna til ráðstefnu í janúar á næsta ári. Að því verki verður að standa vel og drengilega þannig að það leiði til niðurstöðu sem farið verði eftir. Ef út úr þessu kæmu hreinar línur í stað glundroða væri tilganginum náð. Vafa- laust kemur tónlist við útfarir inn í þessa mynd og er það vissulega einnig þarft. Við þetta bindum við okkar vonir nú. Kjartan Sigurjónsson.

x

Organistablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.