Organistablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 2
Fundargerð aðalfundar F.Í.O. 1991
Aðalfundur F.Í.O var haldinn 15. septcmber 1991 í Hallgrímskirkju í Reykjavík.
Formaður, Kjartan Sigurjónsson setti fund og minntist þriggja félaga, þeirra
Gunnlaugs Gunnlaugssonar, Sigurðar Ágústssonar og Karls Sighvatssonar.
Þá var Jón Ólafur Sigurðsson tilnefndur fundarstjóri og Helgi Bragason fundarrit-
ari.
Fundargerð síðasta aðalfundar var borin upp og hún samþykkt.
Þá flutti formaður skýrslu sína. Drap hann þar á nýgerða kjarasamninga og taldi
að framkvæmd þeirra hefði gengið vel. Þá fjallaði formaður um undirbúning norræna
kirkjutónlistarmótsins, sem vera á hér á næsta ári. Erla Elín Hansdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri mótsins. Mótið verður 18. - 21. júní árið 1992. Formaður
nefndi þátttöku félagsins í tveimur námskeiðum, í Háteigskirkju og Selfosskirkju. Þá
nefndi hann að Organistablaðið hefur komið tvisvar úr á árinu.
Kjartan sagði að gleðilegt væri að fyrsta fundargerðarbók lélagsins væri fundin.
Formaður sagði frá stjórnarfundum á árinu.
Formaður talaði um að slæmt væri hversu erfitt væri að ná til félaga úti á landi og
taldi að bæta mætti.
Formaður þakkaði stjórn félagsins og öðru samstarfsfólki.
Næst var skýrsla gjaldkera Kristínar Jóhanncsdóttur. Lagði hún fram reikninga
félagsins. Fundarstjóri bar síðan upp reikningana og voru þeir samþykklir sam-
hljóða.
Jón Ólafur Sigurðsson gcrði sérstaklega grcin fyrir reikningum organistablaðsins
og öðru starfi blaðnefndar á árinu, en blaðið kom tvisvar út.
Þá var orðið laust um áðurnefndar skýrslur. Nokkrar umræður urðu um blaðið og
komu fram hugmyndir um, notkun á greinum úr erlendum tímaritum. Hörður
Áskelsson ræddi um mikilvægi þess að fjalla um tónleika, kynna þá í blaðinu. Margar
góðar ábendingar og hugmyndir um efni í blaðið komu fram.
Ekki urðu fleiri umræður um skýrslu stjórnar.
Næst var gengið til kosninga. Samkvæmt lögum áttu Kristín Jóhannesdóttir, Hörð-
ur Áskelsson og Björn Steinar Sólbergsson að ganga úr stjórn. Marteinn Friðriksson
stakk upp á því að sömu menn yrðu kjörnir í stjórn. Formaður studdi þá tillögu.
Voru þau endurkosin með handauppréttingu.
Kosning endurskoðenda. Kosnir voru Orthulf Prunner og Anna Ingólfsdóttir.
Kosning blaðnefndar. Kosnir voru Jón Ólafur Sigurðsson, Orthulf Prunner og
Gróa Hreinsdóttir.
Kosning varastjórnar. Marteinn var kosinn samhljóða með handaupplyftingu.
Næst tók framkvæmdastjóri Norræna kirkjutónlistarmótsins Erla Elín Hansdóttir
til máls og skýrði frá gangi undirbúningsins. Ljóst er að mótið verður viðamikið og
að vanda þarf til undirbúnings. Dómnefnd hefur þegar valið íslensk verk til flutnings
á mótinu. Hörður Áskelsson sagði að því miður hafi tiltölulega fá kirkjutónlistarverk
verið samin nýlega og því miður væri lítið gert af því, að panta ný verk frá íslenskum
tónskáldum.
Önnur mál. Hörður Áskelsson nefndi að mögulegt væri að fá blaðamenn til liðs við
blaðnefnd til að létta undir með henni.
Marteinn H. Friðriksson tók til máls og benti á að mörg ný og góð hljóðfæri væru
komin og hvatti til samstöðu um að sækja tónleika.
Kjartan Sigurjónsson lagði fram tillögu um að Jakob Tryggvason yrði kjörin heið-
ursfélagi félagsins. Var hún einróma samþykkt.
Ákvörðun félagsgjalda. Samþykkt var samhljóða að hafa þau óbrcytt.
2 ORGANISTABLAÐIÐ