Organistablaðið - 01.12.1991, Side 4

Organistablaðið - 01.12.1991, Side 4
París - Kaprí - Róm Organistaferð 1991. Þegar dró að organistaferðinni í júní 1990 þá skipaði ritnefnd Organistablaðisins Jón Þ. Björnsson organista í Borgarnesi, fréttaritara sinn í þcirri lerð. Og birtist fyrri hluti pistils hans hér, en sá síðari í næsta blaði. Inngangur í organistaferðinni 1991 tóku þátt rúmlega 30 organistar víðs vegar að af landinu, makar margra þeirra, söngfélagar úr kirkjukórum, nokkrir prestar, alls 68 manns. Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri og samstarfsfólk hans hafði veg og vanda af undirbúningi og skipulagningu ferðarinnar og var mjög vandað til þess verks. Haukur var einnig fararstjóri og naut í því starfi ágætrar samvinnu konu sinnar, Grímhildar Bragadóttur. í nesti fcngu ferðalangar bækur tvær. Önnur er græn og hefur að geyma ítarlega dagskrá og margskonar fróðlcik um það merkasta sem fyrir augu bar. „Bláa bókin“ er safn sönglaga af ýmsu tagi og var býsna oft til hennar gripið. Haldið var utan þann 6. júní og lent á Orly flugvclli við París á 10. tímanum um kvöldiö. Leiðsögumaður hópsins í Frakklandi var Laufey Helgadóttir en á Ítalíu Halldóra Friðjónsdóttir. París - Rúöuborg. 7. júní. Parísardvöl hófst með heimsókn í Pére -Lachaise kirkjugarðinn en þar hvílir margt stórmenni. Við héldum rakleiðis að grafreit Chopins og þar fór fram stutt og látlaus athöfn. Hópurinn söng fyrst vers Hallgríms Péturssonar: „Vertu, Guð faðir, faðir minn" með lagi Þórarins Guðmundssonar. Lesið var úr ágætum skrifum Árna Kristjánssonar píanóleikara um tónskáldið og lögð á stall ein rós sem kveðja frá honum. en blómvöndur frá hópnum. Síðan var sungin hin alþckkta prelúdia Chopins í c -moll, op. 28 nr. 20. Textinn er eftir Jón Óskar „Grösin falla, blómin blikna" í raddsetningu Sigurbjargar Helgadóttur. Loks lék Reynir Jónasson sömu prelúdiu á harmoniku. Að kvöldi þess dags var hlýtt á konsertuppfærslu óperunnar Samson og Dalila" eft- ir Saint - Sains í Chatellet Theatre Musical de Pari og þótti flutningurinn kraftmikill og áhrifaríkur. Verður sú stund mörgum minnisstæð. 8. júní. Ekið norður eftir Frakklandi í fegursta veðri og heimsótt höfuðborg Normandí, Rúðuborg en þar hafa gert garðinn frægan þau Göngu-Hrólfur og Jóh- anna af Örk. Til stóð að heyra Louis Thiry leika á orgel „La chapelle du Centre Hospitalier Universitairc Charles Nicolle" en það er frá 1817. Við vorum svo sein fyrir að Thiry gafst upp á að bíða okkar þarna en tók þess í stað á móti okkur í stærstu kirkju borgarinnar sem er klausturkirkja, byggð af reglu hcilags Benedikts á 13. - 16. öld. í kirkjunni cr 62ja radda Cavaille - Coll orgel frá 1890. Ætlunin var að kynna það rækilega og sýna þátttakendum. LouisThiry og Susan Landale léku stund- arkorn á orgelið en því miður var ekki um eiginlega kynningu að ræða. Þetta var fyrsta kirkjan sem við skoðuðum og ekki laust við að undirrituðum ægði stærð hennar og þætti hún næsta drungalcg og hráslagaleg. En það leyndi sér ekki að orgelið er hljómfagurt og hljómburður kirkjunnar góður. En svona hús þurfa að vera full af fólki til að njóta sín. Þá var haldið til baka og komið við í Giverny þar sem bjó 4 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.