Organistablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 6
þveiti sem stafaði af mótmælaaðgerðum heilbrigðisstétta á Bastillutorginu. Tafðist
við þetta ferð okkar sem bjuggum á Grand Hótel (raunar var ekkert stórbrotið við
hótel þetta annað er nafnið). Istaðinn fengum við að horfast í augu við óeirðarlög-
reglu gráa fyrir járnum.
Þessir orgelleikarar komu fram á tónleikunum: Guðmundur Guðjónsson, Daniel
Jónasson, Friðrik Vignir Stefánsson, Jón Ólafur Sigurðsson og Reynir Jónasson.
Auk þess söng frú Guðrún Ellertsdóttir lag Francks „Panis Angelicus". Kirkjan átti
að vera laus fyrir okkur frá 14.30 til þess að organistarnir gætu æft og undirbúið sig
undir handleiðslu Susan Landale, sem gjörþekkir hljóðfærið og kirkjuna. Tón-
leikarnir áttu að hefjast kl. 17.00. Einhverra hluta vegna hafði kirkjan verið lánuð til
prófa og komust organistarnir ekki inn fyrr en kl. 17.00 og máttu bíða mest allan tím-
an ásamt Sunsan Landale á tröppum kirkjunar, forráðamönnum kirkjunnar þóttu
þessi mistök mjög leiðinleg og báðu margfaldrar afsökunar. Það bjargaði undirbún-
ingi að báðar rúturnar urðu of seinar á staðinn vegna áðurgreindra umferðatafa þó
komst rútan frá Hotel Iris mun fyrr á vettfang. Vegna allra þessara tafa þurfti að
stytta tónleikana til muna og buðust þeir Örn Falkner, Friðrik Vignir og Jón Ólafur
til að stytta sinn hluta. Örn Falkner dró sig því miður alveg til baka en hinir tveir
felldu niður annað verkið af tveimur sem þeir höfðu undirbúið.
Eftir tónleikana bauð Albert Guðmundson sendiherra hópnum til bústaðar síns.
Tók hann vel og vinsamlega á móti okkur og veitti af sinni alkunnu rausn.
Parísardvöl lauk svo með málsverði á veitningahúsinu „Le Train Bleu“ og var lagið
tekið hressilega fyrir utan veitingastaðinn, við undirleik Rcynis Jónassonar, áður en
stigið var upp í rúturnar og haldið heim eftir rúmlega 15. klst. dagsferð.
Framhald í næsta blaði.
ORGANISTABLAÐIÐ
Útgefandi:
Félag íslenskra organleikara.
Ritnefnd:
Gróa Hreinsdóttir, Njarðvíkurbraut 33, 260 Njarðvík, s. 92-16113.
Jón Ólafur Sigurðsson, Grenigrund 40, 300 Akranesi s. 93-12996 / 13291
Dr. Orthulf Prunner, Barðavogi 28, 104 Reykjavík, s. 91-30227
Tölvusetning og dreifing:
Jón Ólafur Sigurðsson
Prentun:
Prentverk Akraness hf.
Stjórn Organistafclagsins:
Formaður: Kjartan Sigurjónsson, Lundi 3 v/ Nýbýlaveg, 200 Kópavogi. Sími
91-45968. Ritari: Hörður Áskelsson. Sími 91-11019. Gjaldkcri: Kristín Jó-
hannesdóttir. Sími 93-86640. Meðstjórnendur: Helgi Bragason og Björn
Steinar Sólbergsson.
6 ORGANISTABLAÐIÐ