Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 10

Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 10
flutt inn í kirkjuna 24. júlí. Eimskipafélag íslands h.f. flutti hljóðfærið til landsins og gáfu þeir flutninginn frá Hamborg til Akureyrar. Uppsetning hljóðfærisins hófst síð- an 28. júlí er tveir orgelsmiðir frá Stenmeyer-orgelsmiðjunni komu til Akureyrar. Þeim til aðstoðar voru Gestur Ólafsson kennari og Jakob Tryggvason organisti. J afnframt uppsetningu orgelsins voru gcrðar ýmsar breytingar og viðgerðir á kirkj- unni. Seint í ágúst stóð hið nýja orgel kirkjunnar tilbúið og hefur það 46 raddir, þar af eina rödd í pedal sem fengin er að láni úr fyrsta hljómborði, en hljómborðin eru alls þrjú. I. =? Hauptwerk með 12 röddum, II = Positiv með 8 röddum og tremulant, III borð = Schwellwerk með 15 röddum og tremulanti og fótspili með 11 röddum. Orgel Akureyrarkirkju er og hefur verið frá því að það kom í kirkjuna stærsta org- el landsins. Sunnudaginn 26. nóvember 1961 var svo orgelið vígt sem „Instrumentum Akur- eyrarkirkju" við guðsþjónustu í kirkjunni. Kirkjugestir voru eins margir og komust fyrir í kirkjunni. Organisti kirkjunnar, Jakob Tryggvason lék á orgelið við athöfnina, kirkjukórinn söng, einsöngvari var Kristinn Þorsteinsson. Séra Pétur Sigurgeirsson framkvæmdi vígslu orgclsins og um leið þeirra endurbóta kirkjuhúss og búnaðar, sem unnið hafði verið að um sumarið. Séra Birgir Snæbjörnsson þjónaði fyrir altari fyrir predikun og séra Sigurður Stefánsson vígslubiskup predikaði. Eiginlegir vígslutónlcikar orgelsins voru ekki haldnir fyrr en á útmánuðum 1962. í prófastsvísitasíu 1. júlt' 1962 segir svo. „Dr. Páll ísólfsson dómorganisti í Reykjavík flutti hina eiginlegu vígsluhljómleika á pípuorgelið þann 10. apríl sl. við mikla hrifningu þess mannfjölda, er kirkjan rúm- aði. Við það tækifæri flutti dr. Páll ávarp og rómaði mjög hið vandaða og fullkomna hljóðfæri, sem hann taldi í röð þeirra bestu, er hann hefði á lcikið. Á þessum hljóm- leikum sungu þeir Jóhann Konráðsson og Sverrir Pálsson cinsöng við undirleik dr. Páls. - Sr. Pétur Sigurgeirsson ávarpaði dr. Pál ísólfsson og þakkaði honum innilega fyrir komuna og hljómleikana. - Enn fremur flutti dr. Páll tvenna skólahljómleika." Tvennir aðrir orgeltónleikar voru haldnir í kirkjunni þetta vor. Prófessor Martin Gúnter Förstemann frá Hamborg, lék tónleika 22. og 24. apríl og Ragnar Björnsson 13. júní. (Því miður fylgir ekki hér með efnisskrá tónleikanna og er það miður - innsk. ritnefndar). (Úrdráttur gerður af JÓS úr greinargerð sem blaðinu barst frá sóknarnefnd Akur- eyrarkirkju). Það þykir vel við hæfi að heiðra Jakob Tryggvason fyrrverandi organista Akureyr- arkirkju á 30 ára vígsluafmæli orgelsins. Það cr fyrst og fremst honum að þakka, ásamt áhugafólki og þcim er störfuðu í orgelnefndinni á sínum tíma, að kirkjan á eitt stærsta og glæsilegasta pípuorgel á landinu. Slíl^t hljóðfæri gjörbreytir möguleikum kirkjunnar sem tónleikahúss og hefur stuðlað að því að til Akureyrar hafa komið orgelsnillingar og má þar nefna fólk eins og t.d. Martin Gúnter Förstemann. Fern- ando Germani, Almut RöBler, Louis Thiry, Susan Landale, auk þeirra hafa margir fremstu orgelleikarar okkar íslendinga haldið hér tónleika. Tónleikahald er nú ríkur þáttur í starfi kirkjunnar og má þar nefna m.a. reglulega tónleika í júlí og ágúst í samstarfi við „Sumartónleika á Norðausturlandi“, auk þess sem orgeltónleikar á aðventu eru orðnir árviss viðburður. Einnig eru nú uppi hugmyndir um að hafa einu sinni á ári sérstaka orgelhátíð þar sem fengnir yrðu orgelleikarar innlendir og erlendir, til að dvelja á Akureyri við tón- leika- og námskeiðshald. 10 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.