Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 27
17. dcscmber kl. 20.30 verða í kirkjunni jólatónleikar Tónlistarskólans í Grinda-
vík.
19. dcscmbcr kl. 20.30 verður aðventukvöld kirkjunnar með fjölbreyttri efnisskrá.
Organisti Grindavíkurkirkju og skólastjóri Tónlistarskólans í Grindavík er Sigur-
óli Geirsson.
Fréttir úr Borgarfjarðarprófastsdæmi
Orgcltónlcikar í Hallgríinskrikju í Saurbæ
Friðrik Vignir Stefánsson organleikari við Grundarfjaðrarkirkju hélt orgeltónleika
í Hallgrímskirkju í Saurbæ 8. scptcnibcr s.l. Á cfnisskránni voru verk eftir Buxte-
hude, J.S. Bach, J.S. Bach / C. Gounod, L.V. Beethoven, C. Franck, M. Reger. Pál
tsólfsson, Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson og F. Mendelssohn.
Orgcltónlcikaröð í Akrancskirkju
Organisti og sóknarnefnd Akraneskirkju ganga fyrir mánaðarlegum kirkjutónleik-
um í vetur. Nú þegar blaðið fer í prentun eru búnir þrennir tónleikar:
Mániidaginn 9. scptcinber lék Dr. Karen De Pastel frá Vínarborg.
Tónleikarnir voru helgaðir minningu 200 ára dánarafmæli W. A. Mozarts og voru því
öll verkin cftir hann og samtímamenn hans frá 5 löndum. Efnisskráin var sú sama og
Dr. Karen lék í Háteigskirkju 7. september.
Laugardaginn 5. október lék Friðrik Vignir Stefánsson, organleikari í Grundarfirði.
Efnisskráin var sú sama og á tónleikum hans 8. sept. í Grundarfjarðarkirkju.
Laugardaginn 9. nóvcmber lék Dr. Orthulf Prunner, organleikari við Háteigskirkju
í Reykjavík. á efnisskránni voru eingöngu verk eftir Johann Sebastian Bach: Prcl-
údía og fúga í G-diír IIWV 541, Partíta: O Gott du froinmcr Gott“ BWV 767, Trí-
ósónata í Es-dúr BWV 525, Prclúdía og fiiga í h-moll BWV 544, Þrír sálmforleikir úr
þriðja þætti „Clavicrúbung": „Vater unser iin llimmclrcidi" BWV 682, „Christ uns-
cr Herr zum Jordan Kam“ BWV 684, „Allein Gott in der Höh sei Ehr" BWV 676
og Prclúdía og fúga í C-dúr (9/8) BWV 547.
Laugardaginn 30. nóvembcr leikur Jón Ól. Sigurðsson organleikari við Akra-
neskirkju. Á efnisskránni eru verk eftir D. Buxtehude, J. S. Bach, G. Walther og
César Franck.
Laugardaginn 11. janúar leikur Martin Berkowski, píanóleikari í Safnaðarheimilinu
Vinaminni.
Þeim organistum sem Ityggja á tónleikahald er velkomið að hafa samband við org-
anista kirkjunnar, svo og þeir sem eiga von á erlcndum organistum.
Fréttir úr Snæfellsness-
og Dalaprófastsdæmi
Orgcltónlcikar í Grundarfjaröarkirkju
Friðrik Vignir Stefánsson hélt orgeltónleika í Grundarfjaröarkirkju 22. septembcr
Efnisskrá: D. Buxtehude, J.S. Bach, César Franck, Max Reger, Jón Nordal, Þorkcll
Sigurbjörnsson og Felix Mendelssohn.
ORGANISTABLAÐIÐ 27