Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 32

Organistablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 32
Jóhann Guðmundsson hcfur látið af störfum söngstjóra við kirkjurnar á Hólmavík og að Kollafjarðarnesi, við því starfi tók Krisztine K. Szklcnárné. Jón Tryggvason hefur látið af störfum sem organisti við kirkjurnar að Bólstaðar- hlíð og Bergsstöðum í Húnaþingi og Svanborg Sverrisdóttir hefur tekið við þeim kirkjum auk þeirra kirkna sem hún hafði fyrir. Stefanía Sigurgeirsdóttir hefur látið af störfum organista á Suðureyri og Stað við Súgandafjörð og stundar nú nám við Tónskóla þjóðkirkjunnar, við starfi hennar tók Sigurður Daníelsson. Einar Melax hefur látið af starfi organista við kirkjuna á Flateyri og sr. Gunnar Björnsson æfir kórinn þar sem ekki hefur fengist annar organisti. Gíslína Jónatansdóttir hefur látið af störfum organista við kirkjuna á Fingeyri og hefur enginn verið ráðinn í hennar stað. Árni íslcifsson hefur látið af störfum sem organisti við Vallarnes- og þingmúla- kirkjur og hefur ekki verið ráðinn annar í lians stað. Sigríður Júlíusdóttir hefur látið af störfum við Seyðisfjarðarkirkju og hefur Vit Ko- los tekið við því starfi. Jón Mýrdal hefur látið af störfum við Árbæjarkirkju í Reykjavík. Sigrún Stein- grímsdóttir hcfur verið ráðin í hans stað en hún hefur ekki enn tekið við því starfi og hefur Violeta Smid verið ráðin til að gegna störfum á meðan. Nanna Þórðardóttir hefur tekið við starfi organista við Ólafsvíkurkirkju af Iwonnu Jagla sem látið hefur af störfum organista. F.Í.O. og organistablaðið býður nýja organista velkomna til starfa og sendir einnig þeim sem hafa tekið við nýjum störfum árnaðaróskir um leið og þeim organistum sem látið hafa af störfum er þakkað fyrir samstarfið á liðnum árum og óskað alls hins besta í framtíðinni. Um sálmalög og sálmasöng Eftir Séra Stefán Thorarensen (1831-1892) Framhald (Þessi grein er endurprentun á greinum sem birtust í mánaðarritinu Kirkjublaðið 1. árg. 1891, 5. & 6. tbl. og2. árg. 1. & 2. tbls. 1892. Þykir ritnefnd organistablaðsins að hún sé vel þess virði að endurprentast nú 100 árum síðar, því hún á, því miður, að mörgu leyti við enn þann dag í dag. Orðalag séra Stefáns hefur verið látið halda sér svo og stafsetning, en neðanmálsgreinar sem eru í kirkjublaðinu neðst á hverri blaðsíðu eru hér dregnar saman í lok hvors greinarhelmings.) í upphafi greinarinnar hefur Sr. Stefán þessa athugasemd. „Þótt jeg viti vel, Itversu lítt fær jeg er um það, að rita um þetta mikils umvarðandi efni, sem er ekki annara meðfæri en þeirra, er hafa margfalt meiri þekkingu og vit á því, en jeg hefi, þá þótti mjcr viðurhlutamikið að skorast undan því, ef það kynni að geta orðiö til einhverns góðs, og þótt ckki væri til annars, en þess, að vekja athygli manna á kirkjusöng vorum". (Frumh.). En svo voðalegt sem það er, að velja lög til sálma svona af handahófi, demba yfir þá hverju sem fyrir verður af „þægilegum" eða „fjörugum", en gjörsam- lega ókirkjulegum lögum hins veraldlega söngs, þá kastar þó fyrst tólfunum, þegar meðal þeirra birtast lög frá alkunnum slarkaraljóðum. Berggren minnir á sannleika skáldorðsins, að „ekkert megnar eins töfrandi að endurvekja tilfinningar liðinna tíma og blómilmur og gömul lög“ ekkert sje máttugra en hin alkunnu gömlu kirkjulög, að vekja guðrækilegar endurminningar og hugarástand; en allt eins hljóti veraldleg lög 32 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.