Organistablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 6
Kosningar
Úr stjórn gengu Kjartan Sigurjónsson og Helgi Bragason og Gróa Hreinsdóttir úr
varastjórn.
Formaður var endurkjörinn með lófataki, Helgi Bragason baðst undan endurkjöri og í
hans stað var kosin Sigrún Steingrímsdóttir, organisti Árbæjarkirkju. Gróa Hreinsdóttir
var endurkjörin sem varamaður.
Smári Ólason og Kristán Sigtryggsson voru kosnir endurskoðendur.
Önnur mál
Hilmar Örn Agnarsson, organisti Skálholtskirkju, spurði hvort til væri erindisbréf um
starf organista. Um þetta mál spannst töluverð umræða. Ekki væri til samræmt
erindisbréf, því aðstæður væru mjög ólíkar í söfnuðum, en sumir organistar hefðu þó slík
bréf. Helgi Bragason sagði frá vinnu við undirbúning erindisbréfs í
Kjalarnesprófastsdæmi sem myndi brátt ljúka. Þar verður reynt að miða við punktakerfið
sem er í kjarasamningi FÍO fyrir organista í Reykjavíkurprófastsdæmi, og á að henta
ólíkum stöðustærðum. Organistar úr Kjalarnesprófastsdæmi lögðu áherslu á að
samningamál þeirra yrðu leidd til lykta á vettvangi FÍO. Var samþykkt ályktun þess efnis
að stjórnin beindi því til félagsmanna að þeir sendu stjórn FÍO einstök erindisbréf og/eða
starfssamninga við sóknarnefndir til umsagnar áður en þeir staðfestu slíka samninga.
Hilmar Örn Agnarsson, Sigurbjörg Helgadóttir og Ferenc Utassy voru kosin í ritstjórn
Organistablaðsins.
Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri lýsti ánægju sinni með störf félagsins að
undanförnu. Hann sagði frá organistanámskeiði í ágúst sl. og dreifði námsefni
námskeiðsins til fundarntanna.
Ferenc Utassy sagði frá komu Melindu Kistéteny, tónfræðings frá Budapest, til íslands
nú í haust.
Formaður þakkaði fundarmönnum traust og fundarsetu en fundinn sat 21 félagsmaður og
einn gestur. Fundi slitið kl. 23.30
Fundarritari: Hörður Áskelsson
6 ORGANISTABLAÐIÐ