Organistablaðið - 01.07.1993, Side 8
í Fella- og Hólakirkju flutti Kór Akureyrarkirkju íslenska kórtónlist og kór- og
orgelverk eftir Mendelssohn, Peeters, Fauré og Franck. Stjórnandi var Björn Steinar
Sólbergsson en Antonia Hvesi, organisti á Siglufirði, lék á orgelið.
Dómkórinn hélt síðan vortónleika sína í Dómkirkjunni og flutti þar tónlist eftir Atla
Heimi Sveinsson, Jakob Hallgrímsson, Franck, Thiele, Britten og Eben, stjórnandi var
Marteinn H. Friðriksson.
Dagskrá í Hallgrímskirkju
í Hallgrímskirkju voru alls 5 orgeltónleikar og einir tónleikar þar sem flutt var tónlist
eftir franska tónskáldið Maurice Duruflé.
Sunnudaginn 29. maí flutti Svíinn Hans Fagius verk eftir J.S. Bach og þau verk sem
hlutu 1. og 2. sæti í orgelverkasamkeppninni. 31. maí flutti Hans-Dieter Möller spænska
orgeltónlist og einnig lék hann af fingrum fram hugleiðingu um hvítasunnustef.
Þriðjudaginn 1. júní lék franski organistinn Daniel Roth orgelverk eftir César Franck og
Widor. Þá lék hann af fingrum fram með upphafsstef íslensku sálmanna Víst ertu, Jesú,
kóngur klár og Gefðu að móðurmálið mitt en stefin fékk hann í hendur rétt áður en
tónleikarnir byrjuðu. 2. júní fluttu Mótettukór Hallgrímskirkju og Daniel Roth tónlist
eftir Maurice Duruflé; Prelúdíu úr Svítu fyrir orgel, 4 mótettur við gregorsk stef og
Sálumessu fyrir einsöngvara kór og orgel. Stjórnandi var Hörður Áskelsson.
Einsöngvarar voru þau Rannveig Bragadóttir og Michael Jón Clarke og Inga Rós
Ingólfsdóttir lék á selló.
Föstudaginn 4. júní flutti Almut RöBler síðasta orgelverk franska tónskáldsins Olivier
Messiaen Bókina um heilagt sakramenti. Þetta verk tekur um tvær klukkustundir í
flutningi. Almut RöBler er mjög þekkt fyrir túlkun sína á tónlist Messiaens og var mikill
fengur að fá hana til að flytja þetta verk hér. Á undan tónleikunum fjallaði séra Kristján
Valur Ingólfsson um þá texta sem Messiaen lagði til grundvallar í verkinu og á eftir
tónleikunum var kærleikssamvera um sakramentið þar sem Almut RöBler sagði m.a. frá
verkinu og vinnu sinni með Messiaen.
Fimmtu tónleikarnir voru síðan sunnudaginn 6. júní en þar lék Hörður Áskelsson
orgelverk eftir Pál ísólfsson og Tokkötu eftir Jón Nordal sem hann samdi í minningu
Páls.
Þýðing kirkjulistahátíðar
Almennt var gerður góður rómur að dagskrá Kirkjulistahátíðar og má vísa þar m.a. í
grein sem Jón Asgeirsson skrifaði í Morgunblaðið miðvikudaginn 9. júní 1993 þar sem
hann fjallar um hátíðina og hvaða þýðingu hún hefur fyrir kirkjuna og listsköpun innan
hennar. Yfirstjórn Kirkjulistahátíðar var í höndum séra Guðmundar Þorsteinssonar og séra
Jóns Dalbú Hróbjartssonar, prófasta Reykjavíkurprófastsdæma, dr. Hjalta Hugasonar,
formanns Listvinafélags Hallgrímskirkju og Ingimundar Sigfússonar fyrir hönd biskups
íslands. Framkvæmdastjórn hátíðarinnar var í höndum Harðar Áskelssonar, Jóhanns
Björnssonar, Þóru Kristjánsdóttur, dr. Gunnars Kristánssonar og Jóns Stefánssonar en
framkvæmdastjóri var Ásta Hrönn Maack. Kirkjulistahátíð hafði starfsaðstöðu í
Hallgrímskirkju.
8 ORGANISTABLAÐIÐ