Organistablaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 11
Kirkjukóramót Húnavatnsprófastsdæmis
16. - 18. apríl 1993
Helgina 16. - 18. aprfl sl. söfnuðuðust saman í Laugabakkaskóla í Miðfirði um 120
kórfélagar víðsvegar að úr Húnavatnsprófastsdæmi en það nær yfir Húnavatnssýslurnar
báðar og Strandasýslu. Á sama tíma var haldinn aðalfundur Kirkjukórasambands
Húnavatnsprófastsdæmis og var sambandinu gefið nafnið KÓSHÚN. Aðalgestur mótsins
var Haukur Guðlaugsson, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar.
Hápunktur mótsins var samverustund í Hvammstangakirkju á sunnudagsmorgninum þar
sem prestar úr prófastsdæminu leiddu dagskrána og kórarnir sungu.
Sunnudagseftirmiðdaginn var síðan samsöngur kóranna í nýju íþróttahúsi
Laugabakkaskóla. Var það í fyrsta skipti sem tónlistarflutningur átti sér þar stað og
reyndist hljómburður vera allgóður, en nokkra þætti mætti bæta. f fyrri hluta dagskrár
sungu kórarnir ýmist hver fyrir sig eða nokkrir saman. í síðari hluta dagskrárinnar söng
síðan kór allra þátttakenda Þýska messu eftir Franz Schubert en Sverrir Pálsson hefur
lagað íslenskan texta að tónlistinni. Þarna var leikið undir á pípuorgel Staðarkirkju, sem
hún lánaði til mótsins, og einnig á píanó Tónlistarskólans. Stjórnendur kóranna skiptu
þama með sér stjómun og undirleik auk þess sem Haukur Guðlaugsson lék undir einstaka
þætti messunnar. Um 150 manns komu til að hlýða á tónleikana og var flutningnum vel
fagnað.
Þetta var í fyrsta sinn sem kórar alls prófastsdæmisins komu saman og var það mál
manna að vel hefði til tekist. Allur aðbúnaður í Laugabakkaskóla var góður og er augljóst
að víða í dreifbýli er góð aðstaða til móta sem þessa.
Úr frétt Karls Sigurgeirssonar, Hvammslanga.
Kóramót kirkjukóra Kjalarnessprófastsdæmis
Vestmannaeyjum 26. - 28. febrúar 1993
í febrúarlok var haldið fjölmennt kóramót í Vestmannaeyjum. Þangað komu 13 kórar
og söngstjórar kirkna í Kjalarnessprófastsdæmi, rúmlega 200 manns. Prófastsdæmið nær
yfir landsvæði Gullbringu- og Kjósarsýslu, ef undan eru skilin Reykjavík, Kópavogur og
Seltjamarnes, og svo eru Vestmannaeyjar með. Þetta er annað kóramótið sem haldið hefur
verið í prófastsdæminu. Hið fyrsta var í Víðistaðakirkju í mars 1991.
Kórarnir höfðu undirbúið 6 verkefni heima til sameiginlegs flutnings auk þess sem allir
komu með eitthvað sérstakt í farteskinu.
Ferðin út í Eyjar varð söguleg. Upphaflega átti að flytja allan hópinn með Herjólfi en
þegar til kom voru stýrimenn í verkfalli. Var brugðið á það ráð að fá varðskip til að flytja
hópinn og sigldi Óðinn með hann út í Eyjar á föstudeginum og aftur til baka á
sunnudeginum.
Eftir sameiginlegar æfingar voru haldnir tónleikar í íþróttahúsi Týs laugardaginn 27.
febrúar. Þar sungu nokkrir kórar einir sér en tónleikunum lauk með samsöng þeirra. Voru
tónleikarnir vel sóttir af heimafólki. Kóramótinu lauk síðan með sameiginlegum fagnaði
um kvöldið.
11 ORGANISTABLAÐIÐ