Organistablaðið - 01.07.1993, Side 17

Organistablaðið - 01.07.1993, Side 17
Verkstjóri við uppsetningu og stillingu var Giinther Schumacher en auk hans unnu þeir Ulrich Busacker, Heinz Bergheim, Jiirgen Schroeder og Hans Cremer við hana. Um raddskipan sáu prófessor Hans-Dieter Möller, Hörður Áskelsson og Hans Gerd Klais. Málsetningu pípna framkvæmdu Hans Gerd Klais og Klaus Hilchenbach og sá hinn síðarnefndi einnig um tónmyndun og stillingu. Nýyrði í orgelmáli í tilefni af vígslu Klais-orgelsins í Hallgrímskirkju var gefinn út veglegur bæklingur um orgelið. Ritnefnd blaðsins uppgötvaði að mörg fagheiti sem tengist orgelum hafa ekki fengið þjál íslensk orð. Því hafði hún samband við íslenska' málnefnd og í samvinnu við starfsmann hennar, Baldur Jónsson, urðu sum eftirfarinna orða til. Þeim má skipta í nokkra kafla. Þannig hefur orgelborðið fjögur nótnaborð og fótspil, handstýrð raddtengsl og rafstýrt raddval. Rafstýrðu orgelborði verður bætt við síðar. Nótnaborðin heita: I Bakorgel (Rúckpositiv), II aðalverk (Hauptwerk), III svelliverk (Schwellwerk), IV hvellverk (Bombardwerk). Organistinn er í organistastúkunni eða á organistaloftinu, sem jafnframt er vinnuloft organistans. Raddfjölskyldurnar heita: Tunguraddir, flauturaddir, yfirblásnar raddir, strengjaraddir, aðalraddir (principal), umbreyttar raddir (aliquote), blandraddir (mixtúrur) og lokaðar pípur (gedeckt). 17 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.