Organistablaðið - 01.06.1995, Page 6
Guðsþjónusta er metin 7 tímar,
aðrar guðsþjónustur 4 tímar, kór-
æfing 4 tímar, konsert o.fl. 15
tímar, fermingarfræðsla 4 tímar.
Vinnuvika samtals 35 tímar. Þetta
kerfi hefur ekki reynst nógu
sveigjanlegt og vinnuveitendur
gerðu sér grein fyrir göllum þess.
1990 fóru Norðmenn að leita nýrra
leiða til að leysa eldra kerfið af
hólmi. Síðan þá hefur verið reynt að
samræma grunnlaun organista og
tónlistarkennara. 1994 fengu
organistar í Noregi verulega leið-
réttingu grunnlauna án þess að aðrir
hópar fylgdu með. Brúttó ársverk
þeirra er 35,5 klst. á viku x 52 =
1 846 klst. er 100% staða.
Danir kynntu sínar reglur og Norðmenn töldu dönsku og norsku reglurnar að mörgur
leyti líkar. Norðmenn og Danir eru nokkuð ánægðir með sitt tímakerfi, en Svíar ekki.
Rætt var um vígslu organista. Handbók norsku kirkjunnar var endurskoðuð um 1980.
Þá var mikið rætt um hverjir skyldu hljóta vígslu til starfa innan kirkjunnar. Lagt var til
að kantorar yrðu vígðir eins og djáknar og fræðarar. Sten Henriksson kynnti efni Svía,
varðandi vígslu. Danir töldu að vígsla yrði ekki að veruleika í Danmörku og ekki falla
inn í danskan hugsunarhátt. I Finnlandi var sagt að málið væri ekki til urnræðu. Hins
vegar hafa Finnar gert tilraun til að meta erfiði og álag sem fylgdi störfum, almennt séð
og brjóta það upp í einingar. Hver er ábyrgðin, hve mikil menntun og hve mikil orka fer
í störfin. Þeir hafa gert líkan og greina störfin í 4 flokka.: Þekkingu, ábyrgð, álag og
aðstæður. Rætt var um hve erfitt væri að meta hve mikið andlegt og líkamlegt álag fylgdi
organistastarfmu og að niðurstaða fyrrgreindrar flokkunnar hlyti að verða tilviljana-
kennd.
Einnig var rætt um samstarf starfsmanna kirkjunnar og að mikil þörf væri á ákvæðum
um starfssvið hvers og eins svo að síður yrðu árekstrar sem hömluðu því að góður starfs-
árangur næðist.
Þá var rætt um hvert t.d. organisti leitaði þegar hann ætti í erfiðleikum, m.a. vegna
veikinda. Norðmenn stefna að því að stærri söfnuðir ráði starfsmann til stjórnunarstarfa,
til að samræma starf starfsfólks hverrar kirkju og ráða fram úr vanda sem upp kann að
lcoma í daglegum önnum. Sá starfsmaður hefði þá viðeigandi menntun til að rækja þessi
stjórnunarstörf.
6 ORGANISTABLAÐIÐ