Organistablaðið - 01.06.1995, Síða 30
f sumar verða svo sem verið hefur hádegisbænir á miðvikudögum með
léttum hádegisverði á eftir. Kl. 11:30 er leikið á orgelið á undan
athöfninni sem hefst kl. 12:10.
í kirkjunni er sýning gamalla muna og mynda sem tengjast sögu
Dómkirkjunnar og gamla miðbæjarins.
Mánudaginn 12. október 1994 hefði dr. Páll ísólfsson orðið 100 ára og voru þann dag
tvennar hátíðarsamkomur haldnar minningu hans til heiðurs.
Fulltrúar Ríkisútvarpsins, Dómkirkjunnar, Reykjavíkurborgar, ættingja dr. Páls,
Sinfóníuhljómsveitarinnar og Tónskáldafélagsins undir stjórn dr. Guðmundar
Emilssonar, tonlistarstjora utvarpsins höfðu undirbúið dagskrá í Þjóðleikhúsinu þann
dag kl. 1 7:00 og í Dómkirkjunni kl. 20:00. Útvarpað var beint frá báðum tónleikunum.
Einnig voru kynntir í útvarpinu tveir geisladiskar með organleik dr. Páls, útgefnir af
Ríkisútvarpinu og Reykjavíkurborg. Á vegum Tónlistarskólans í Reykjavík var aílijúpuð
stytta af dr. Páli úr bronsefni, gerð af Sigurjóni Ólafssyni.
Reykjavíkurborg bauð til fagnaðar í Ráðhúsinu eftir athöfnina í Dómkirkjunni. í
Pjoðleikhusinu sagði Jon Porarinsson fra hfi og starfi dr. Páls, borgarstjóri hr. Markús
Örn Antonsson flutti avarp, Sinfoníuhíjomsveit íslands lék undir stjórn Páls P.
I ampichler, og Ólöf Kolbrun Harðardottir söng einsöng, en Þorkell Sigurbjörnsson
stjórnaði dagskrá.
í Domkirkjunni flutti biskup íslands hr. Ólafur Skúlason ávarp, Dómkórinn söng og
Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti, lék á orgel. Bækling sem innihélt frásögn um líf
og starf dr. Páls ritaði Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur og var bæklingurinn
kostaður af Dómkirkjunni.
Nemendur dr. Pals heldu einnig orgeltonleika á dögunum fyrir og eftir afmælið. Frá því
var sagt í síðasta organistablaði.
30 ORGANISTABLAÐIÐ