Organistablaðið - 01.06.1995, Síða 34
Jón biskup Vídalín
Kirkju reisir kristinn söfnuður
Guði til dýrðar með þeirri bæn, að
húsið megi verða öllum athvarf í
gleði og sorg.
Þessi bygging heitir Vída-
línskirkja. Á þann hátt vill
söfnuðurinn minnast þess manns,
sem er í hópi þeirra, sem markað
hafa dýpst spor í sögu íslensku
þjóðarinnar.
Jón biskup Vídalín fæddist að
Görðum 21. mars 1666. Hann
brautskráðist úr Skálholtsskóla
vorið 1682. Árið 1688 lauk hann
guðfræðiprófi í Kaupmannahöfn.
í desember 1695 fékk hann
veitingu fyrir Garðaprestakalli og
þjónaði þar, uns hann var vígður
Skálholtsbiskup 1. maí 1698.
Þann 1. júní hið sama ár sæmdi
háskólinn í Kaupmannahöfn
hann magistersnafnbót í heim-
speki. I vitund Islendinga hefúr
hann einnig ætíð verið meistari.
Biskup andaðist 30. ágúst 1720.
Hann var prédikari og voru ræður hans lesnar á flestum heimilum landsins í nálægt tvær
aldir og var Vídalínspostilla víðast til. Kjarnyrði hans og einlæg trú á Guð átti sinn mikla
þátt í því að þjóðin hélt styrk sínum, þótt hörmungar sæktu að á svo margan hátt. Það
er þvi vel, að kirkjan beri nafn hans í fæðingarbyggð hans. Það er vonin mest, að enn
megi rit biskups styrkja trú nranna og efla dug til alls þess, sem til gagns og blessunar má
verða komandi kynslóðum.
(Frá Vídalínskirkju)
34 ORGANISTABLAÐIÐ