Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 6
Organistablaðið
Aðalfundur
F.Í.0.1999
Aðalfundur Félags íslenska organleikara
var haldinn í Hallgrímskirkju laugardag-
inn 18. september 1999. Bjarni Guðráðsson var
kjörinn fundarstjóri og Sigrún Steingrímsdóttir
fundarritari.
Hér fylgir úrdráttur úr fundargerðinni.
(gerður af ritstjóra)
I Skýrsla fornianns.
Kjartan Sigurjónsson, kom inn á eftirfarandi
atriði í skýrslu formanns.
a) Húsnæði. Félagið hefur fengið til afnota
herbergi í húsnæði söngmálastjóra. Þar verða
m.a. geymd gögn félagsins o.fl. og einnig verð-
ur þar starfsaðstaða fyrir félagið.
b) Organistablaðið. Einnig kom fram hjá
formanni að hann teldi brýnt að breyta aftur
íyrirkomulagi organistablaðsins og gera það á
ný sjálfstætt blað, enda hefði fjárhagur félags-
ins batnað og ætti að standa undir kostnaði við
blaðið.
c) Norrænt kirkjutónlistarmót. í ræðu for-
manns kom einnig fram að félagið á tvö sæti í
Norræna kirkjutóniistarráðinu, en þau skipa
Kjartan Sigurjónsson og Hörður Áskelsson. Þá
kom formaðurinn inn á Norræna kirkjutónlist-
armótið í Helsinki í september 2000 og lagði
fram hugmyndir um okkar framlag þar og lagði
til að sendur yrði lítill kammerkór og að vegur
orgeltónlistar verði meiri en í Gautaborg 1996.
Lagði hann til að kammerkórinn Scola Cantor-
um og Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari
færu fyrir okkar hönd.
d) Norrænir orgeldagar. Fram kom hjá for-
manni að Norrænir orgeldagar stæðu yfir í
Reykjavík á sama tíma og fundurinn var hald-
inn og að félagið hafi átt þátt í að hrinda þeim
úr vör. Formaður þakkaði Douglas Broutsche
framkvæmdastjóra og Herði Áskelssyni list-
rænum stjórnanda, sem átti hugmyndina að
þessum dögum.
II Fjármál
a) Kristín Jóhannesdóttir lagði fram reikn-
inga félagsins og voru þeir samþykktir.
b) Kristín lagði til að félagsgjöld til F.Í.O.
yrðu óbreytt þ.e. 1,5% af föstum launum hjá
fullgildum félögum og 2/3 af taxta íyrir útför
hjá aukafélögum og var tillagan samþykkt.
III Starfsreglur organista.
HörðurÁskelsson kynnti og fjallaði um drög að
starfsreglum um organista og orgelleikara inn-
6