Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 15

Organistablaðið - 01.05.2000, Blaðsíða 15
Organistablaðið Hér á landi frumflutti hann mörg ís- lensk orgelverk. Minnistæður er frum- flutningur hans á sálmforleikjum eftir ís- lensk tónskáld sem hann flutti í Skálholti, en eldfjallið Hekla byrjaði að gjósa rétt áð- ur en tónleikarnir hófust og tók undir og drundi í meðan tónleikarnir stóðu yfir. Var þessi stund táknræn fyrir líf og karakter Ragnars, því hann var skapríkur listamað- ur, sem fór ekki alltaf troðnar slóðir og lét ekki bugast þótt móti blési. Ragnar réðst oft í stór verkefni eins og t.d. þegar hann lék alla Orgelbiichlein - Litlu orgelbókina eftir Bach á einum tón- leikum í Dómkirkjunni í mars 1971, og síðar í Digraneskirkju á hið nýja orgel Björgvins Tómassonar og einnig á Froben- íusar orgelið í Landakotskirkju. Hann var fyrstur manna að kynna orgelverk Oliver Messiaen hér á landi, þegar hann lék níu þætti úr Fæðingu Frelsararns 11. mars 1965. Einnig flutti hann mörg af stóru org- elverkunum eftir Franz Liszt og Max Reg- er. Á starfstíma Ragnars við Dómkirkjuna stofnaði hann Óratóríukór Dómkirkjunn- ar, kór sem var fær um að flytja hin stærri kórverk. Flutt var Jólaóratoría Bachs með félögum úr Sinfóníuhljómsveit íslands. Stabat Mater eftir Dvorák var flutt í Há- skólabíói árið 1972 með Sinfóníuhljóm- sveit íslands. Var verkið endurflutt í Dóm- kirkjunni síðar með orgelundirleik. Þá flutti hann Alþingishátíðarkantötu Emils Thoroddsen einnig með Sinfóníuhljóm- sveitinni, karlakórnum Fóstbræðrum og einsöngvurum í Háskólabíói. í október 1975 flutti óratóríukórinn Requiem eftir Cherubini ásamt einsöngvurum og hljóð- færaleikurum úr Sinfoníuhljómsveit ís- lands. Ragnar stjórnaði nokkrum tónleik- um sinfóníuhljómsveitarinnar og stjórn- aði einnig við óperuflutning og ball- ettsýningar í Þjóðleikhúsinu. Ragnar samdi nokkur tónverk, bæði söngverk og líka hljóðfæraverk. í viðbæti við Sálmasöngsbókina er kórverkið „Þeir hringdu hljómþungum klukkum" fyrir kór og orgel. Einnig „Himna rós, leið og ljós“ lag úr Hymnodiu útsett fyrir einsöngsrödd og orgel. Þá samdi Ragnar orgleverk, karl- akórsverk, tríó fyrir strokhljóðfæri, kvart- ett fyrir tréblásturshljóðfæri, svítu fyrir tólf selló, lagaflokk og hljómsveitarverk, svo fátt sé talið. Gefnar hafa verið út hljóðritanir með leik Ragnars á orgelverkum eftir Franz Liszt, Pál ísólfsson og Jón Þórarinsson og sálmforleikjum eftir íslensk tónskáld. Þá hefur verið gefinn út hljómdiskur undir heitinu „Sögulegar upptökur“, en þar leik- ur Ragnar píanóverk hljóðrituð kringum 1950 eða um líkt leyti og hann lauk loka- prófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum i Reykjavík. Ragnar var tónlistargagnrýnandi Morgnublaðsins. Hann var félagi í Félagi íslenskra organleikara um árabil og sat í stjórn þess um nokkurt skeið. Árni Arinbjarnarson 15

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.