Norðurland - 17.06.1994, Blaðsíða 6

Norðurland - 17.06.1994, Blaðsíða 6
6 - NORÐURLAND Ungur töffari við Ráðhústorg lætur sér fátt um finnast í góða veðrinu við Ráðhús- torg snemma á sjötta áratugnum. Á neðri myndinni má sjá konur á sama tíma við vinnu sína við að framleiða skó. Iðnaðarbærinn Akureyri í miklum blóma. Gunnar Rúnar tók þessar myndir sem eru birtar með leyfi Minjasafnsins á Akureyri. Norðurhnd Útgefandi: Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Eiðsvallagötu 18 • Pósthólf 492 602 Akureyri • Sími 21875 Ábyrgðarmaður: Steingrímur J. Sigfússon Gefið út í 8.500 eintökum Prentvinnsla: Dagsprent LEIÐARI Fyrstu fimmtíu árin Lýðveldið okkar er búið að slíta barnsskónum. Fimmtíu ár eru að sönnu ekki langur tími í sögu þjóðríkis eins og fslendingar með rúmlega 1100 ára sögu sína vita. En hitt sjáum við einnig allt í kring um okkur að þjóðir hafa misst sjálfstæði sitt, endurheimt það og jafn vel hvoru tveggja oftar en einu sinni á skemmri tíma en hálfri öld. Það er því vissulega tilefni til að fagna, tilefni til að gleðj- ast yfir því sem unnist hefur, tilefni til að spyrja hvar stöndum við, hvert stefnum við og þó síðast en ekki síst minnast þess að sjálfstæði þjóðar er ekki sjálfsagður eða sjálfgefinn hlutur. Engum blöðum er um það að fletta að lýðveldistíminn fellur saman við mesta uppgangs- og velmegunarskeið í sögu þjóðarinnar. Það hlýtur nánast að kallast ævintýri sú uppbygging sem hér hefur orðið á þessum skamma tíma. Þegar haldnar eru hneykslunarræður um fjárfest- ingarmistök, óstjórn og erlendar skuldir, sem vissulega eru miklar, ættu menn að minnsta kosti að minnast þess að það hefur líka mikið verið gert. Á þremur til fjórum áratugum drógu íslendingar nágrannaþjóðir sínar uppi hvað lífskjör og almenna velmegun snertir, byggðu upp nútíma samfélag tækni og samgangna sem stendur öðr- um vestrænum ríkjum fyllilega á sporði.Auðvitað hefur vegferð þjóðarinnar þessi fimmtíu ár ekki verið þrauta- laus. Á bak við mikla uppbyggingu, glæsilegan húsakost og góð lífskjör margra, leynast skuggahliðar vinnuþræl- dóms, misskiptingar og skulda. Sá vágestur sem þó er hvimleiðast að vita af í landinu um þessar mundir er án alls efa atvinnuleysið. Sú staðreynd ein og sér að ís- lendingar komust upp í það á þessum tíma að ná öðru sæti meðal þjóða heimsins hvað snertir þjóðarframleiðslu á mann, sýnir okkur þó hverjir möguleikarnir eru. Hvað sjálfstæð þjóð í eigin landi, landi mikilla möguleika, getur gert. Hvernig er svo um að litast, er bjart yfir þjóðinni og gengur hún örugg og hiklaust til móts við nýja tíma? Ör- ugg í þeirri vissu að úr því okkur hefur aldrei vegnað betur en einmitt á þeim tíma sem við höfum ráðið okkur sjálf þá hljóti einnig að verða svo framvegis? Þannig hnígi öll hin efnislegu og efnahagslegu rök að því að sjálfstæðri hafi þjóðinni vegnað best? Svari hver fyrir sig. En sjálfstæði og fullveldi þjóðar á líðandi stundu eða í tíð einnar kynslóðar er ekki dægurmál, ekki efnahags- legt atriði, ekki reikningsdæmi. Það er sögulegt, menn- ingarlegt og tilfinningalegt fyrirbæri, spurning um sjálfs- vitund, rætur þess sem er, arfleifð og framtíð í senn. Dapurlegt er til þess að vita að einmitt á afmælisári lýðveldisins skuli úrtöluraddir nauðhyggjumanna taka að hljóma. En jafnvel þær eru ekki tilefni til þess að örvænta á hátíðarstundu. Þær munu hljóðna eins og veisluglaumurinn því að lokum mun þjóðin með einum eða öðrum hætti alltaf upplifa að gæfu sína getur hún aðeins sótt í eigin rann. sjs Tjrn ■ ■ : inn að góðu veitd er heimsókn í KEA Byggingavörur Allt í garðvinnuna: Garðverkfœri, sláttuvélar, áburður, sumarblóm og margt fleira Blómapottar, blómaker og svalakassar í úrvali - Gott verð Sólhúsgögn, grill og grilláhöld umm ER GRHJD ÚRVALIÐ ER MEIRA EN ÞIG GRUNAR

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/784

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.