Skólablaðið - 01.10.1946, Blaðsíða 3
RITNEFND
HÁTÍÐARBL AÐSINS:
SKOLABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT I MENNTASKÓLANUM í REYKJAVÍK
TÖLUBLAÐ ÞETTA ER TILEINKAÐ
HUNDRAÐ ÁRA AFMÆLI SKÓLANS
22. árg. Október 1946 1. tbl.
Bjarni Bragi Jónsson,
formaður.
Friðrik Þórðarson.
Hallgrímur Lúðvígsson.
Rögnvaldur- Jónsson.
Steingrímur Hermanns-
son.
Theodóra Thoröddsen.
Bogi Ingimarsson,
auglýsingastjóri.
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Magnús Finnbogason,
kennari.
STEINDÓRSPRENT H.F.
HUNDRAÐ ÁR eru horfin í hyldjúpl tímans liaf. Hundraö árgangar vonglaðra, sig-
urvissra stúdenta hafa gengið í hvíthýfðum liópum frá hinni björtu forhlið skólans. Fram
á við hafa þeir stefnt til lífs og starfs meðal þjóðar sinnar. Að baki þeim hafa legið mennta-
skólaárin, æskuglöð og áhyggjulétt. Innan bjartra veggja skólans hafa þeir notið ylsins
frá arni menntagyðjunnar. Þar hafa þeir slitið barnsskónum til fulls og gengið þaðan á
brott sem fullþroska menn, sér meðvitandi um ábyrgðarhlutverk sitt. En það hefur verið
þjóðinni til gæfu, að stúdentum hennar hefur lœrzt það af hinum frjálsa anda þess uppeldis,
er þeir hafa hlotið hér í menntaskólanum, að þeir höfðu verið að leika sér að litfögrum og
lokkandi smáskeljum á sjávarströnd, þar sem úthaf vizkunnar ólgaði og glampaði úti fyr-
ir í fegurð fullkomleikans. Sá andi hefur orðið þeim ómetanleg hvöt til þess að leita nýrra
landa í heimi vísinda og vizku. Þeir hafa barizt gegn auðnuleysi örbirgðar og einangrun-
ar við að fullkomna menntun sína þjóðinni til farsœldar. Barátta þeirra liefur ekki lieldur
til einskis orðið, því að þeir hafa náð að verða leiðtogar þjóðarinnar í andlegum og ver-
aldlegum efnum, eflendur hinna fögru lista og hins frjálsa anda í landinu.
■k
MEGINHLUTA hins hundrað ára langa starfstímabils Menntaskólans í Reykjavik
hefur hann mátt kallast œðsta menntastofnun landsins. Nú mun Háskóli íslands almennt
vera talinn verðskulda þaö nafn öllum öðrum skólum fremur. Slíkt er ekki nema eðlileg
þróun, sem œtti að vera hverjum Islendingi gleðiefni. En að háskólanum undanskildum
hlýtur Menntaskólinn í Reykjavík ásamt bróður sínum nyrðra að teljast menntanna höfuð-
ból í landinu.
k
Oft lieyrast nemendur skólans eldri og yngri tala um það, að mikilvœgi hans í bæj-
arlífinu hafi hrakað stórlega við þróun síðustu áratuga, og hann skipi ekki eins veglegan