Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.10.1946, Qupperneq 8

Skólablaðið - 01.10.1946, Qupperneq 8
PÁLMI HANNESSON, rektor: Setn ingarrœða Ræðukafli þessi er síðari hluti ræðu, er rektor flutti við hátiðlega setningu skólans 1. okt. 1946. Þannig hófst það starf, sem síðan hefur haldizt hér um heillar aldar skeið. Það er fornt mál, að lengi búi að fyrstu gerð, og vissulega hefur skólinn notið þeirra manna, sem stóðu að stofnun hans, notið lærdóms þeirra, alúðar og annarra mannkosta. Þess vegna minnumst vér þeirra í dag með djúpri virðingu og einlægri þökk, — minnumst þeirra og allra annarra, sem lagt hafa hönd á plóg í þessu sáðlandi lærdóms og menntunar. Margt hefur breytzt á liðinni öld. Margt hefur efalaust farið á annan veg en feður skólans hugðu og óskuðu í öndverðu. En ekki verður um það deilt, að sú von þeirra hafi rætzt, að héðan hafi út gengið margir merkismenn, sém orðið hafi fósturjörð sinni til gagns og gleði og sæmdar. Skólinn hóf starf sitt við kyrrlátt árdags- skin íslenzkrar viðreisnar og bjartsýni. Hann hlaut í vöggugjöf veglegustu húsakynni, sem þá voru til í landinu, — og flest annað var rausnarlega til hans lagt. Hann var óska- barn þjóðarinnar, og miklar vonir voru við hann festar. Nú hefst ný öld í sögu þessa skóla, — nýr áfangi á leið hans liggur fram undan. Og þess er ekki að dyljast, að hag hans er á ýmsan hátt annan veg farið en í öndverðu var, enda er mér nú nokkur uggur í brjósti, er ég lít fram á veginn. Skólinn er ekki leng- ur utan og ofan við bæjarglauminn, heldur í honum miðjum. Það er nú lítil tízka í landi voru að lifa rósömu lífi og stunda sína eigin iðn, því að kyrrð þjóðlífsins er rofin af ímugusti andstæðra stefna og flokka. Slík veðrabrigði eru ekki alls kostar æskileg sáð- 1946 Pálmi Hannesson. löndum andans fremur en umhleypingar vors- ins eru gróandi akurrein. Skólinn nýtur ekki lengur þeirrar aðhlynningar né þess vegs, sem honum hlotnaðist í öndverðu. Skólahúsið eitt er hið sama og í upphafi var, veglegt enn að vísu, en þó úrelt orðið og óhentugt um margt til skólahalds, eins og vænta má, þegar litið er á þær framfarir, sem orðið hafa um húsagerð og kröfur til húsakynna á liðinni öld. Hitt varðar þó mestu, að húsið er langsamlega ofsetið. — Svo er ráð fyrir gert, að hér verði á fimmta hundrað nem- enda næsta vetur, eða jafnmargir og íbúar í meðalstóru þorpi hér á landi. Öll þessi ung- menni og kennarar þeirra, 29 að tölu, eiga að hafast hér við hvern virkan dag og stunda iðju sína. Engum getur dulizt, að hér sé far- ið framarlega á hlunn um aðbúð og hollustu- hætti, eða mundi slíkt þykja boðlegt á venju- legum vinnustað? — Og þó eiga hér í hlut ungmenni á þroskaskeiði, sem eiga að afla sér þess sem dýrmætast er fyrir sjálfa þá og þjóðfélagið, þekkingar og virðingar á því sem fagurt er, rétt og satt. Heill og hagur vors hundrað ára afmælisbarns veltur á því, að hér verði um bætt. — Vafalaust á skólinn fyrir sér að breytast á komandi tíð, eins og annað. En ég er ekki gæddur þeirri gáfu að geta séð fyrir óorðna hluti, því að Skuld skyggir mér fyrir sjónir 6 SKÓLABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.